„Alvarlegt þegar menn ganga frá borðinu á síðustu stundu“ 4. apríl 2008 15:38 Jón Karl Ólafsson fyrrum forstjóri Icelandair, Kári Kárason, Pétur J Eiríksson, Davíð Másson, Hafþór Hafsteinsson undirrita viljayfirlýsinguna. MYND/Hörður
Avion Aircraft Trading gagnrýnir Icelandair Group harðlega fyrir að falla frá leigu- og kaupsamningum á Airbus-flugvélum á síðustu stundu eins og fyrrnefnda félagið heldur fram í tilkynningu. Í maí 2007 gekk Avion Aircraft Trading (AAT) frá viljayfirlýsingu við Icelandair Group um leigu á tveimur og kaup á tveimur nýjum Airbus A330-200 fraktvélum og áttu þær að afhendast Icelandair Cargo og Icelease árin 2010 og 2011. Frágangur leigu- og kaupsamninga hefur staðið yfir undanfarna mánuði og voru nú á lokastigi eftir mikla vinnu beggja aðila, segir AAT. „Því kom það AAT verulega á óvart að Icelandair Group skyldi falla frá þessum samningum á síðustu stundu og eru það ákveðin vonbrigði því samþykki stjórnar Icelandair Group lá fyrir vegna viljayfirlýsingarinnar og hefur verið unnið að lokafrágangi samninga í góðri trú,“ segir í tilkynningunni. „Það hafa orðið breytingar á hluthafahópi og í stjórn sem og forstjóraskipti hjá Icelandair Group frá því að þetta ferli hófst. Hefur það umrót væntanlega gert útslagið í þessu máli. Við munum fara nákvæmlega yfir okkar rétt. Við teljum það mjög alvarlegt þegar menn ganga svona frá borðinu á síðustu stundu með skömmum fyrirvara," segir Davíð Másson forstjóri AAT í tilkynningunni. Hann segir fyrirtækið nú ætla að bjóða þessar vélar til annara aðila sem hafa sýnt þeim áhuga. „Við höfum í rauninni ekki áhyggjur af því að geta ekki leigt eða selt vélarnar. Það eru hins vegar vonbrigði að hafa eytt svo miklum tíma til einskis í góðri trú og um leið haldið öðrum flugfélögum frá vélunum á sama tíma." „Ákvörðun Avion Aircraft Trading um kaup á þessum vélum byggðist á mjög hagstæðu kaupverði og spám um vöxt í fraktflutningum í heiminum. Sömu spár telja þörf fyrir meira en 400 fraktvélar af þessari burðargetu næstu 20 árin. Airbus A330-200 fraktvélin er eina vélin í sínum stærðarflokki sem getur borið 64 tonn með 7.400 km hámarks flugdrægi og hámarks burðargetu upp á 69 tonn með 6,000 km flugdrægi. Yfir 60 flugfélög reka í dag farþegaútgáfuna sem auðveldar viðkomandi flugfélögum að taka fraktútgáfuna í notkun,“ segir einnig í tilkynningunni.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira