Viðskipti innlent

„Alvarlegt þegar menn ganga frá borðinu á síðustu stundu“

Jón Karl Ólafsson fyrrum forstjóri Icelandair, Kári Kárason, Pétur J Eiríksson, Davíð Másson, Hafþór Hafsteinsson undirrita viljayfirlýsinguna.
Jón Karl Ólafsson fyrrum forstjóri Icelandair, Kári Kárason, Pétur J Eiríksson, Davíð Másson, Hafþór Hafsteinsson undirrita viljayfirlýsinguna. MYND/Hörður

Avion Aircraft Trading gagnrýnir Icelandair Group harðlega fyrir að falla frá leigu- og kaupsamningum á Airbus-flugvélum á síðustu stundu eins og fyrrnefnda félagið heldur fram í tilkynningu.

Í maí 2007 gekk Avion Aircraft Trading (AAT) frá viljayfirlýsingu við Icelandair Group um leigu á tveimur og kaup á tveimur nýjum Airbus A330-200 fraktvélum og áttu þær að afhendast Icelandair Cargo og Icelease árin 2010 og 2011.

Frágangur leigu- og kaupsamninga hefur staðið yfir undanfarna mánuði og voru nú á lokastigi eftir mikla vinnu beggja aðila, segir AAT. „Því kom það AAT verulega á óvart að Icelandair Group skyldi falla frá þessum samningum á síðustu stundu og eru það ákveðin vonbrigði því samþykki stjórnar Icelandair Group lá fyrir vegna viljayfirlýsingarinnar og hefur verið unnið að lokafrágangi samninga í góðri trú,“ segir í tilkynningunni. 

„Það hafa orðið breytingar á hluthafahópi og í stjórn sem og forstjóraskipti hjá Icelandair Group frá því að þetta ferli hófst. Hefur það umrót væntanlega gert útslagið í þessu máli. Við munum fara nákvæmlega yfir okkar rétt. Við teljum það mjög alvarlegt þegar menn ganga svona frá borðinu á síðustu stundu með skömmum fyrirvara," segir Davíð Másson forstjóri AAT í tilkynningunni.

Hann segir fyrirtækið nú ætla að bjóða þessar vélar til annara aðila sem hafa sýnt þeim áhuga. „Við höfum í rauninni ekki áhyggjur af því að geta ekki leigt eða selt vélarnar. Það eru hins vegar vonbrigði að hafa eytt svo miklum tíma til einskis í góðri trú og um leið haldið öðrum flugfélögum frá vélunum á sama tíma."

„Ákvörðun Avion Aircraft Trading um kaup á þessum vélum byggðist á mjög hagstæðu kaupverði og spám um vöxt í fraktflutningum í heiminum.

Sömu spár telja þörf fyrir meira en 400 fraktvélar af þessari burðargetu næstu 20 árin. Airbus A330-200 fraktvélin er eina vélin í sínum stærðarflokki sem getur borið 64 tonn með 7.400 km hámarks flugdrægi og hámarks burðargetu upp á 69 tonn með 6,000 km flugdrægi. Yfir 60 flugfélög reka í dag farþegaútgáfuna sem auðveldar viðkomandi flugfélögum að taka fraktútgáfuna í notkun,“ segir einnig í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×