Kolsvart útlit eða ljós í myrkrinu 23. mars 2008 18:47
Hrun íslensku krónunnar í síðustu viku hefur vakið athygli fjölmiðla bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Telegraph líkir Íslandi við eitraðan vogunarsjóð en Wall Street Journal segir ástandið ekki jafnslæmt og margir vilji að láta. Í grein Telegraph segir að íslenska ríkisstjórnin berjist í bökkum við að koma í veg fyrir hrun efnahagslífsins. Haft er eftir sérfræðingi að litið sé á Ísland sem eitraðan vogunarsjóð og að bankarnir hafi farið langt fram úr sér. Bent er á að bankarnir hafi tapað háum fjárhæðum og sögur séu uppi um að Kaupþing banki verði þjóðvæddur á næstu misserum. Í grein Telegraph kemur einnig fram að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hafi reynt að gera grein fyrir stöðu íslensks efnahagslífs á erlendum vettvangi, en hann hafi talað fyrir daufum eyrum. Wall Street Journal er öllu jákvæðara í garð íslensks efnahagslífs. Þó er bent á mikil krosseignatengsl í íslensku viðskiptalífi og því skapast sú hætta að fari einn íslensku bankanna á hausinn, hafi það keðjuverkandi áhrif og hættan á hruni eykst. Einnig sé það áhyggjuefni að um 40 vogunarsjóðir hafi tekið þá stöðu að veðja á að hagnast á gjaldþroti íslenskra fyrirtækja. Hins vegar er tekið fram að eiginfjárstaða íslenskra banka sé mjög sterk, um 10 prósent samanborið við 6 prósent hjá bandarískum bönkum. Þar að auki hafi íslenskir bankar ekki tapað miklu á undirmálslánum á bandarískum húsnæðislánamarkaði. Enn fremur segir blaðið að staðfesta Seðlabankans í að halda niðri verðbólgu hafi róandi áhrif á fjárfesta. Einnig liggi fyrir samkomulag milli norrænu Seðlabankanna sem felst í því að lendi einn þeirra í vandræðum, hlaupi aðrir undir bagga og tryggi neyðarfjármögnun. Þetta ætti að slá á áhyggjur fjárfesta.
Mest lesið „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira