Nowitzki vill meira 10. mars 2008 15:09 Nordic Photos / Getty Images
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki varð á dögunum stigahæsti leikmaður í sögu Dallas Mavericks. Hann segist ánægður með áfangann en þráir ekkert heitar en að vinna meistaratitil með félaginu. Þeir voru ekki margir sem höfðu trú á Nowitzki þegar hann kom til Dallas árið 1998 sem horaður og óreyndur unglingur beint frá Þýskalandi. "Þegar ég kom hingað fyrst, átti ég síður von á því að ná að skora þúsund stig - hvað þá hátt í sautján þúsund eins og núna," sagði Nowitzki í samtali við Dallas News. "Hvað sem gerist, þá mun ég alltaf geta horft til baka og rifjað upp hvað þetta hefur verið ótrúlegur tími. Ég vil geta horft til baka eftir 10 eða 20 ár og vitað að ég hafi átt meira inni, sérstaklega að vinna titil. Það yrði mjög dýrmætt," sagði Nowitzki. Hann hefur verið í miklu stuði með Dallas að undanförnu og er til að mynda með 30,7 stig, 9,2 fráköst og 50% nýtingu í síðustu 11 leikjum sínum. Nowitzki var öðrum fremur gagnrýndur í fyrravor þegar lið Dallas féll út úr úrslitakeppninni í fyrstu umferð fyrir Golden State - en Dallas liðið var þá með bestan árangur allra liða í deildarkeppninni og Nowitzki var skömmu síðar kjörinn verðmætasti leikmaður ársins í NBA. Það er ljóst að fáir leikmenn hafa því meira að sanna en Nowitzki þegar úrslitakeppnin í NBA hefst í næsta mánuði, en baráttan í Vesturdeildinni er sú harðasta í manna minnum.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira