Kók, súkkulaði og majónes 27. febrúar 2008 15:30 Arteta ofbýður matarsukkið á Englendingum Nordic Photos / Getty Images
Mikel Arteta hjá Everton hefur nú sagt frá því hvað landar hans í þjálfunarteymi Tottenham voru gáttaðir þegar þeir komust að því hvað var á matseðlinum hjá leikmönnum liðsins áður en Juande Ramos tók við. Arteta hitti landa sinn og þjálfara Marcos Alvarez fyrir leik Everton og Tottenham í síðasta mánuði og Alvarez greindi þar frá furðu sinni á mataræði leikmanna Lundúnaliðsins. "Hann missti andlitið þegar hann sá hvað var á boðstólnum í mötuneytinu á æfingasvæðinu. Þar voru menn að drekka kók og borða sælgæti og majónes," sagði Arteta í viðtali. Mikið hefur verið gert úr því í fjölmiðlum hvernig Ramos og hans menn lýstu því yfir að skafa þyrfti 100 kíló af leikmannahópi Tottenham - en aðgerðir Spánverjans hafa borið mjög góðan árangur eins og sást í bikarúrslitaleiknum í deildarbikarnum um síðustu helgi. Arteta segir að Tottenham sé ekki eina liðið sem hafi verið í ruglinu þegar kom að mataræði, því í raun séu hlutirnir ekkert skárri hjá Everton. "Leikmennirnir geta fengið sér fisk og franskar á enska vísu ef þeir vilja og slíkt mataræði viðgengst hér. Menn eiga erfitt með að venjast betri matarvenjum og ég þurfti að biðja sérstaklega um hrísgrjón, pasta og kjúklingabringur þegar ég kom hingað fyrst - eldað að mínum hætti," sagði Arteta.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira