Þeir tíu tryggustu Elvar Geir Magnússon skrifar 25. febrúar 2008 18:30 Ryan Giggs er á toppnum.
Það er mjög sjaldgæft í dag að sterkir leikmenn leiki með sama liðinu allan sinn feril. Það eru þó nokkrar breskar fótboltastjörnur sem hafa haldið mikilli tryggð við sitt lið. Blaðamenn The Sun tóku saman lista yfir þá tíu tryggustu og röðuðu þeim í sæti. Tekið var tillit til afreka og tryggðar við gerð listans. 1. Ryan Giggs - Manchester UnitedTöframaðurinn frá Wales trjónir á toppi listans. Það munaði litlu að hann færi til Manchester City sem krakki en United krækti í hann og alla tíð síðan hefur hann sýnt mögnuð tilþrif. Hefur í búningi United unnið níu enska meistaratitla og Meistaradeildina. Paul Scholes og Gary Neville hafa einnig leikið alla tíð á Old Trafford en Giggs ber þó höfuð og herðar yfir þá. 2. Billy Wright - WolvesWright er kallaður herra Úlfur. Hans ást fyrir félaginu þegar hann fór að vinna við heimavöll Wolves aðeins tíu ára gamall. Hann lék fjölmarga leiki fyrir félagið og bar fyrirliðaband enska landsliðsins. Settist í stjórn félagsins eftir að hafa hætt knattspyrnuiðkun. 3. Tony Adams - ArsenalAdams var kletturinn í vörn Arsenal í átján ár. Mancheste United reyndi að fá hann á sínum tíma en hann neitaði við mikla gleði stuðningsmanna Arsenal. Er nú aðstoðarstjóri Portsmouth en dreymir líklega um að stýra Arsenal dag einn. 4. Jack Charlton - LeedsVar í skugga Bobby bróður síns. Er goðsögn í augum stuðningsmanna Leeds United eftir að hafa verið allan sinn feril á Elland Road. Lék yfir 700 leiki í búningi félagsins. 5. Tom Finney - PrestonPípulagningarmaðurinn sem sýndi Preston mikla tryggð. Þrátt fyrir áhuga að utan vildi Finney aldrei yfirgefa Preston og stóð við það. 6. Nat Lofthouse - BoltonStúka á Reebok stadium heitir eftir þessum leikmanni. Var drjúgur í markaskorun fyrir Bolton og enska landsliðið. 7. Matt Le Tissier - SouthamptonSkoraði mörg mögnuð mörk á sextán ára ferli. Stærri lið Englands reyndu að fá hann til sín en án árangurs. 8. Steven Gerrard - LiverpoolÁst hans á Liverpool er ótvíræð. Var næstum því farinn til Chelsea á sínum tíma en gat ekki slitið sig frá Liverpool. Á þann draum að vinna ensku úrvalsdeildina með félaginu. 9. Trevor Brooking - West HamÞessi snjalli leikmaður lék með West Ham 1967 - 1984 og er frægastur fyrir sigurmark West Ham í bikarúrslitaleik gegn Arsenal þegar liðið var í deild fyrir neðan Arsenal. 10. John Terry - ChelseaÞað er erfitt að ímynda sér Terry spila fyrir annað félag en Chelsea. Hefur tvívegis unnið ensku úrvalsdeildina og var gerður að fyrirliða enska landsliðsins.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira