Tommy Smith gagnrýnir Benítez Elvar Geir Magnússon skrifar 17. febrúar 2008 15:00 Tommy Smith er greinilega búinn að fá nóg af Benítez.
Tommy Smith, fyrrum varnarmaður Liverpool, gagnrýnir Rafael Benítez harðlega eftir að liðið tapaði fyrir Barnsley í ensku bikarkeppninni. Barnsley skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og er Liverpool nú aðeins í baráttu um Meistaradeildartitilinn. „Fyrir leikinn á laugardag þá sagði Benítez að bikarkeppnir væru alltaf hættulegar ef maður væri að vanmeta andstæðinginn. Af hverju í ósköpunum stillti hann þá ekki upp sterkasta mögulega liðinu?" sagði Smith. Smith var fyrirliði Liverpool þegar liðið vann ensku deildina og UEFA keppnina 1971. Hann segir að stuðningsmenn Liverpool séu að missa þolinmæðina gagnvart spænska stjóranum. „Bill Shankly sagði alltaf að maður væri aldrei betri en síðustu úrslit segðu. Heldur Benítez að hann nái að vinna titla ef hann lætur ekki sterkasta liðið spila? Leikmannahópur Liverpool er ekki eins sterkur og hann hélt í upphafi tímabil. Ég tel hann ekki einu sinni eiga nægilega sterkt byrjunarlið." „Það er mér óskiljanlegt að hann hafi ekki látið Jose Reina, Steven Gerrard og Javier Mascherano spila," sagði Smith en hann telur að viðureignin við Inter sé upp á líf og dauða fyrir Benítez. „Ég er hræddur um það. Hann heldur áfram að tala um þessa fjóra bikara sem hann hefur unnið en þeir telja bara ekki núna. Liðið nær ekki einu sinni að skemmta áhorfendum á Anfield og menn eru að fá nóg." „Fyrsti leikmaðurinn sem maður stillir upp í byrjunarliðinu er Steven Gerrard. Svo er Benítez að tala um öll færin. Sannleikurinn er sá að þessi færi eru farin. Þú getur ekki skorað úr þeim eftir að leiknum lýkur," sagði Smith.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Handbolti Viktor Gísli fékk silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira