Körfubolti

Skiptar skoðanir um félagaskipti Shaq

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Shaquille O'Neal og Shawn Marion eigast við.
Shaquille O'Neal og Shawn Marion eigast við. Nordic Photos / Getty Images

Örlítill meirihluti lesenda Vísis telja að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Phoenix Suns að fá Shaquille O'Neal til liðsins.

Í vikunni gekk Shaq til liðs við Phoenix frá Miami Heat sem fékk þá Shawn Marion og Marcus Banks í staðinn. Margir efast um ágæti félagaskiptanna þar sem Marion hefur verið með betri leikmönnum Phoenix undanfarin ár og farið að síga á seinni hluta ferilsins hjá Shaq.

53,8 prósent svöruðu eftirfarandi spurningu játandi: „Var það rétt ákvörðun hjá Phoenix Suns að skipta út Shawn Marion fyrir Shaquille O'Neal?"

Það er því ljóst að margir eru efins um að Phoenix hafi með þessu verið að styrkja liðið sitt í þeirri baráttu sem er framundan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×