Körfubolti

Shaquille O´Neal til Phoenix

Nordic Photos / Getty Images

Nú rétt í þessu var staðfest að miðherjinn Shaquille O´Neal muni ganga í raðir Phoenix Suns í NBA deildinni - í einhverjum óvæntustu leikmannaskiptum síðari ára í deildinni.

O´Neal stóðst í kvöld læknisskoðun hjá Phoenix, sem sendir þá Shawn Marion og Marcus Banks til Miami Heat í stað miðherjans stóra. Hann var þegar búinn að setja sig í samband við Steve Nash hjá Phoenix og sagði við hann "Ég mun ekki bregðast þér."

Taktu þátt í umræðum og lestu meira um málið á nba-blogginu á Vísi. 

NBA

Tengdar fréttir

Spurningum um Shaq verður svarað í kvöld

Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami er sagður vera á leið til Phoenix í læknisskoðun í kvöld og þar ræðst væntanlega hvort verður af félagaskiptum hans og Shawn Marion sem greint var frá í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×