Enski boltinn

Brynjar óttast ekki fall

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Björn í leik með Reading.
Brynjar Björn í leik með Reading. Nordic Photos / Getty Images

Brynjar Björn Gunnarsson segist í samtali við BBC ekki óttast að Reading verði undir í fallbaráttunni sem er framundan hjá liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Sem stendur er Reading í sautjánda sæti deildarinnar, aðeins einu stigi fyrir ofan Birmingham sem situr í fallsæti.

„Við verðum að standa saman og leggja tvöfalt meira á okkur en hingað til," sagði Brynjar Björn. „Við munum örugglega ná að snúa gengi liðsins á rétta braut og vinna þá fimm eða sex leiki sem þarf sennilega til."

„Það eru enn margir leikir eftir á tímabilinu og enn mörg stig í pottinum. Ég held að við höfum það sem til þarf og ekki síður trúna á því að við höldum okkur uppi."

Brynjar Björn hefur áður staðið í fallbaráttu er hann lék með Stoke í ensku B-deildinni. „Við vorum meðal þriggja neðstu liðanna lengst af á tímabilinu en þegar tveir eða þrír leikir voru eftir náðum við þeim stigum sem til þurfti."

Hann hefur undanfarið átt við meiðsli í nára að stríða en hann segist vonast til að hann jafni sig fljótt. „Batinn er hægur en góður. Vonandi verð ég orðinn klár eftir eina til tvær vikur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×