TR og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn Sigríður Lillý Baldursdóttir skrifar 7. maí 2008 05:00 Í greinaskrifum og fréttaflutningi af samskiptum Tryggingastofnunar og tilteknum sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum sem eru utan samninga við heilbrigðisyfirvöld hefur gætt nokkurs misskilnings sem mikilvægt er að leiðrétta. Lögbundið hlutverk Tryggingastofnunar er að sjá um framkvæmd almannatrygginga. Í þessu hlutverki felast m.a. endurgreiðslur til viðskiptavina vegna ákveðins læknis- og sjúkrakostnaðar og eftirlit með réttindum sjúkratryggðra. Sá misskilningur hefur verið í umræðunni upp á síðkastið að Tryggingastofnun semji við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn um þátttöku ríkisins í kostnaði vegna þjónustu þeirra. Hið rétta er að samninganefnd heilbrigðisráðherra „...annast samningsgerð um veitingu heilbrigðisþjónustu og greiðsluþátttöku ríkisins vegna hennar fyrir hönd ráðherra samkvæmt nánari ákvörðun hans hverju sinni." (Lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/1007 og lög um almannatryggingar nr. 100/2007). Samninganefnd heilbrigðisráðherra semur við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn um greiðslur úr ríkissjóði fyrir þjónustu þeirra. Heilbrigðisráðherra setur reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt reglugerð nr. 1265/2007 er t.d. sjálfstætt starfandi sérfræðingum á samningi, heilsugæslustöðvum og sjúkrastofnunum óheimilt að innheimta hærri eða önnur gjöld af sjúkratryggðum en þar er kveðið á um. Hlutverk Tryggingastofnunar felst í að greiða umsamin gjöld fyrir þjónustu sérfræðinga sem eru á samningi að frádregnum greiðslum hins sjúkratryggða. Um Tryggingastofnun fara miklir fjármunir ár hvert og starfsfólki stofnunarinnar er falið að standa vörð um hag allra þeirra sem njóta réttinda skv. almannatryggingalögum. Eftirlit með samningum þeim sem samninganefnd heilbrigðisráðherra hefur gert við heilbrigðisstarfsfólk snýst um að tryggja réttindi sjúkratryggðra hér á landi og sjá til þess að þeir njóti umsaminnar þjónustu. Sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn sem ekki eru á samningi geta verðlagt þjónustu sína einhliða. Í nokkrum tilvikum hefur sjúkratryggðum viðskiptavinum þeirra verið tryggður réttur með reglugerðum til ákveðinnar endurgreiðslu að því marki sem reglugerðin (gjaldskrá ráðherra) segir til um. Verðleggi viðkomandi heilbrigðisstarfsmenn þjónustu sína hærra kemur það í hlut viðskiptavina þeirra að greiða mismuninn. Þegar ekki takast samningar um þjónustu milli sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna og samninganefndar heilbrigðisráðherra kostar það viðskiptavini meiri fyrirhöfn og oftast einnig aukin útgjöld. Jafnframt veldur það aukinni umsýslu hjá Tryggingastofnun. Tryggingastofnun hefur þó lagt áherslu á að bregðast við með aukinni þjónustu við viðskiptamenn þannig að óhagræði þeirra vegna skorts á samningi verði sem minnst. Höfundur er forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson Skoðun Skoðun Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson,Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar Skoðun Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar Skoðun Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Í greinaskrifum og fréttaflutningi af samskiptum Tryggingastofnunar og tilteknum sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum sem eru utan samninga við heilbrigðisyfirvöld hefur gætt nokkurs misskilnings sem mikilvægt er að leiðrétta. Lögbundið hlutverk Tryggingastofnunar er að sjá um framkvæmd almannatrygginga. Í þessu hlutverki felast m.a. endurgreiðslur til viðskiptavina vegna ákveðins læknis- og sjúkrakostnaðar og eftirlit með réttindum sjúkratryggðra. Sá misskilningur hefur verið í umræðunni upp á síðkastið að Tryggingastofnun semji við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn um þátttöku ríkisins í kostnaði vegna þjónustu þeirra. Hið rétta er að samninganefnd heilbrigðisráðherra „...annast samningsgerð um veitingu heilbrigðisþjónustu og greiðsluþátttöku ríkisins vegna hennar fyrir hönd ráðherra samkvæmt nánari ákvörðun hans hverju sinni." (Lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/1007 og lög um almannatryggingar nr. 100/2007). Samninganefnd heilbrigðisráðherra semur við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn um greiðslur úr ríkissjóði fyrir þjónustu þeirra. Heilbrigðisráðherra setur reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt reglugerð nr. 1265/2007 er t.d. sjálfstætt starfandi sérfræðingum á samningi, heilsugæslustöðvum og sjúkrastofnunum óheimilt að innheimta hærri eða önnur gjöld af sjúkratryggðum en þar er kveðið á um. Hlutverk Tryggingastofnunar felst í að greiða umsamin gjöld fyrir þjónustu sérfræðinga sem eru á samningi að frádregnum greiðslum hins sjúkratryggða. Um Tryggingastofnun fara miklir fjármunir ár hvert og starfsfólki stofnunarinnar er falið að standa vörð um hag allra þeirra sem njóta réttinda skv. almannatryggingalögum. Eftirlit með samningum þeim sem samninganefnd heilbrigðisráðherra hefur gert við heilbrigðisstarfsfólk snýst um að tryggja réttindi sjúkratryggðra hér á landi og sjá til þess að þeir njóti umsaminnar þjónustu. Sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn sem ekki eru á samningi geta verðlagt þjónustu sína einhliða. Í nokkrum tilvikum hefur sjúkratryggðum viðskiptavinum þeirra verið tryggður réttur með reglugerðum til ákveðinnar endurgreiðslu að því marki sem reglugerðin (gjaldskrá ráðherra) segir til um. Verðleggi viðkomandi heilbrigðisstarfsmenn þjónustu sína hærra kemur það í hlut viðskiptavina þeirra að greiða mismuninn. Þegar ekki takast samningar um þjónustu milli sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna og samninganefndar heilbrigðisráðherra kostar það viðskiptavini meiri fyrirhöfn og oftast einnig aukin útgjöld. Jafnframt veldur það aukinni umsýslu hjá Tryggingastofnun. Tryggingastofnun hefur þó lagt áherslu á að bregðast við með aukinni þjónustu við viðskiptamenn þannig að óhagræði þeirra vegna skorts á samningi verði sem minnst. Höfundur er forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun