Viðskipti innlent

Sænski seðlabankinn reiðubúinn til aðstoðar þeim íslenska

MYND/Róbert

Sænski seðlabankinn segist reiðubúinn að aðstoða þann íslenska og vísar þar til gjaldmiðlaskiptasamnings sem gerður var fyrr á árinu.

Í sænskum miðlum er vitnað til hans en þar kemur fram að samningurinn kveði á um 500 milljóna evra aðstoð, jafnvirði 65 milljarða króna. Slíkur samningur liggi einnig fyrir á milli íslenska seðlabankans og hins danska og norska.

Talsmenn sænska seðlabankans vilja ekki tjá sig um það hvort samningurinn verði virkur og segja engar beiðnir þar að lútandi hafa borist frá Seðlabanka Íslands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×