Rík ástæða til að fara fram á nálgunarbann Magnús Már Guðmundsson skrifar 8. ágúst 2008 12:30 Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Stefán Eiríkisson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að embættið hafi talið ríka ástæðu til að fara fram á áframhaldandi nálgunarbann manns sem ákærður hefur verið fyrir að beita sambýliskonu sína grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. ,,Við setjum þetta fram af því að teljum ríka ástæðu til þess en það er síðan dómstólanna að meta það og þeir komast að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Við þá niðurstöðu verðum við að sættast eins og allir aðrir. Ég ber mikla virðingu fyrir dómstólum þessa lands," segir Stefán. Rannsóknin teygir anga sína út fyrir landsteinana og hefur lögreglan þurft að leita aðstoðar lögregluyfirvalda í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Hæstiréttur úrskurðaði í gær að hinn ákærði skuli ekki sæta áframhaldandi nálgunarbanni næstu þrjá mánuði en hann var dæmdur í janúar í sex mánaða nálgunarbann. Ákærði beitti sambýliskonu sína ofbeldi og sýna myndir og myndbönd merki um miklar barsmíðar. Maðurinn fékk ókunnuga karlmenn til að eiga samræði við sambýliskonu sína gegn hennar vilja. Ákærði myndaði kynferðislegar athafnir mannanna með konunni. Ofbeldið átti sér stað á árunum 2005 til 2007.- Rannsókn á grófum ofbeldisbrotum nær út fyrir landsteinana
Mest lesið Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Sjá meira