Fjármálaeftirlitið og Fiskistofa 16. desember 2008 06:00 Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og einn ráðherra hafa nýlega, í blaðagrein og blaðaviðtali, borið saman starfsmannafjölda Fjármálaeftirlitsins og Fiskistofu. Það er mér hulið hvað þessi samanburður á að þýða, ég kem ekki auga á hvað geti verið sambærilegt í starfsemi þessara stofnana. Þjónar það einhverjum tilgangi að bera saman starfsmannafjölda í Fjármálaeftirlitinu og fjölda veiðieftirlitsmanna Fiskistofu til sjós og lands? Ég get ekki séð það, en get upplýst að eftirlitsmenn Fiskistofu, í almennu eftirliti, á aðalskrifstofunni, á 6 starfsstöðvum úti á landi og í fullvinnsluskipum, eru samtals 42. Er þá e.t.v. raunhæft að bera saman starfsmannafjölda í Fjármálaeftirlitinu og fjölda þeirra starfsmanna Fiskistofu sem vinna við útgáfu og flutning veiðiheimilda, upplýsingasöfnun, úrvinnslu og veitingu upplýsinga úr sjávarútvegi, m.a. til alþingismanna, tölvuþjónustu fyrir Hafrannsóknastofnun o.s.frv.? Er ekki álíka gáfulegt að bera starfsmannafjölda Fjármálaeftirlitsins saman við fjölda starfsmanna Landhelgisgæslunnar, Lögreglunnar, Samkeppniseftirlitsins eða fjölda meindýraeyða? Ég verð að viðurkenna að ég botna bara ekkert í því hvert Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson eru að fara þegar þeir segja í annars ágætri grein í Fréttablaðinu, 13. des., að Fjármálaeftirlitið sé aðeins með 60% af þeim mannafla sem Fiskistofa hefur. Og að lokum skulu alþingismenn, og aðrir sem haldið hafa því fram að starfsmenn Fiskistofu séu 200 talsins, upplýstir um að heildarfjöldi starfsmanna Fiskistofu er 82, auk tveggja eftirlitsmanna í hlutastarfi í Hull og Grimsby. Fyrir 5 árum voru starfsmenn Fiskistofu 96 talsins. Síðan þá hafa 5 ný störf orðið til hjá Fiskistofu. Á móti hafa 12 störf verið flutt frá Fiskistofu til Matvælastofnunar. Starfsmönnum Fiskistofu hefur því í raun fækkað um 7 á síðastliðnum 5 árum. Fækkun starfsmanna Fiskistofu kemur ekki til af því að verkefnin hafi skroppið saman heldur hefur hún náðst fram með hagræðingu, betra skipulagi og aukinni rafrænni stjórnsýslu. Þessu má einnig þakka þá staðreynd að Fiskistofa hefur aldrei, í þau 16 ár sem stofnunin hefur starfað, farið fram úr fjárheimildum sínum. Höfundur er fiskistofustjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar skipta máli Arndís Bára Pétursdóttir skrifar Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og einn ráðherra hafa nýlega, í blaðagrein og blaðaviðtali, borið saman starfsmannafjölda Fjármálaeftirlitsins og Fiskistofu. Það er mér hulið hvað þessi samanburður á að þýða, ég kem ekki auga á hvað geti verið sambærilegt í starfsemi þessara stofnana. Þjónar það einhverjum tilgangi að bera saman starfsmannafjölda í Fjármálaeftirlitinu og fjölda veiðieftirlitsmanna Fiskistofu til sjós og lands? Ég get ekki séð það, en get upplýst að eftirlitsmenn Fiskistofu, í almennu eftirliti, á aðalskrifstofunni, á 6 starfsstöðvum úti á landi og í fullvinnsluskipum, eru samtals 42. Er þá e.t.v. raunhæft að bera saman starfsmannafjölda í Fjármálaeftirlitinu og fjölda þeirra starfsmanna Fiskistofu sem vinna við útgáfu og flutning veiðiheimilda, upplýsingasöfnun, úrvinnslu og veitingu upplýsinga úr sjávarútvegi, m.a. til alþingismanna, tölvuþjónustu fyrir Hafrannsóknastofnun o.s.frv.? Er ekki álíka gáfulegt að bera starfsmannafjölda Fjármálaeftirlitsins saman við fjölda starfsmanna Landhelgisgæslunnar, Lögreglunnar, Samkeppniseftirlitsins eða fjölda meindýraeyða? Ég verð að viðurkenna að ég botna bara ekkert í því hvert Illugi Gunnarsson og Bjarni Benediktsson eru að fara þegar þeir segja í annars ágætri grein í Fréttablaðinu, 13. des., að Fjármálaeftirlitið sé aðeins með 60% af þeim mannafla sem Fiskistofa hefur. Og að lokum skulu alþingismenn, og aðrir sem haldið hafa því fram að starfsmenn Fiskistofu séu 200 talsins, upplýstir um að heildarfjöldi starfsmanna Fiskistofu er 82, auk tveggja eftirlitsmanna í hlutastarfi í Hull og Grimsby. Fyrir 5 árum voru starfsmenn Fiskistofu 96 talsins. Síðan þá hafa 5 ný störf orðið til hjá Fiskistofu. Á móti hafa 12 störf verið flutt frá Fiskistofu til Matvælastofnunar. Starfsmönnum Fiskistofu hefur því í raun fækkað um 7 á síðastliðnum 5 árum. Fækkun starfsmanna Fiskistofu kemur ekki til af því að verkefnin hafi skroppið saman heldur hefur hún náðst fram með hagræðingu, betra skipulagi og aukinni rafrænni stjórnsýslu. Þessu má einnig þakka þá staðreynd að Fiskistofa hefur aldrei, í þau 16 ár sem stofnunin hefur starfað, farið fram úr fjárheimildum sínum. Höfundur er fiskistofustjóri.
Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar