Misjöfn staða fjármálafyrirtækja vegna krafna Seðlabankans 21. október 2008 12:55 MYND/GVA
Forsvarsmenn SPRON segja félagið hafa átt takmörkuð viðskipti með skuldabréf annarra fjármálastofnana og hafi gert ráð fyrir því að aukinna trygginga yrði óskað. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar vegna frétta af því að Seðlabankinn hyggist krefja nokkrar fjármálastofnanur um auknar tryggingar vegna svokallaðra endurhverfra viðskipta.Fram hefur komið í máli forstjóra Sparisjóðabankans að hann fari í þrot ef Seðlabankinn haldi fast í kröfu sína um 60 milljara króna tryggingar vegna veðlána Sparisjóðabankans.Þau fjármálafyrirtæki sem málið snertir hafa sent frá sér yfirlýsingar hver af annarri vegna málsins. SPRON tekur fram að öll innlend greiðslumiðlun hafi um árabil farið í gegnum Seðlabanka íslands án milligöngu Sparisjóðabanka Íslands.Þá segja Askar Capital að bankinn hafi átt í endurhverfum viðskiptum við Seðlabanka Íslands með skuldabréf Glitnis banka. Útistandandi fjárhæð er tæpir sex milljarðar. Askar geti lagt fram viðbótartryggingar vegna veðkalls Seðlabankans en Seðlabankinn þurfi að leggja mat á veðhæfni eignarinnar. Askar hefur óskað eftir fundi með Seðlabankanum vegna þessa. „Þá hefur Askar möguleika á að lýsa yfir skuldajöfnun við Glitni en skuld Askar við Glitni er hærri en framangreint skuldabréf. Vegna óvissu er ekki unnt á þessu stigi að meta til fullnustu áhrif þessara aðgerða á fjárhagsstöðu Askar en verðlækkun skuldabréfanna getur haft verulega neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins," segir í tilkynningunni.VBS vill að staðið verði við samningaEnn fremur segjast forsvarsmenn VBS hafa átt endurhverf viðskipti af tvennum toga, annars vegar með 15 milljarða skuldabréf Landsbanka Íslands og hins vegar 125 milljóna dollara skuldabréf Kaupþings. „Í samningi milli VBS og Landsbanka Íslands hf. um kaup bréfsins er sérstakt ákvæði sem heimilar VBS að skuldajafna milli aðila. VBS hefur fyrir nokkru sent tilkynningu til Landsbanka þar sem lýst er yfir skuldajöfnun, en skuld VBS við Landsbanka Íslands hf. var hærri á skuldajöfnunardegi en skuld Landsbankans við VBS skv. framangreindu skuldabréfi," segir VBS.Um skuldabréf Kaupþings segir VBS að fjármunirnir hafi fengist lánaðir gegn tryggingu í reiðufé og víxli útgefnum af VBS. „VBS hefur nú, í ljósi breytinga á frádragi af umræddu bréfi í veðlánum við Seðlabanka, óskað eftir því að Kaupþing skili umræddu skuldabréfi gegn afhendingu þeirra trygginga sem VBS lét af hendi. Þetta er heimilt með eins dags fyrirvara skv. samningi þeim sem gerður var um lánið á bréfinu. Ekki var um eiginleg kaup VBS að ræða á framangreindu skuldabréfi útgefnu af Kaupþingi banka hf. og er krafa VBS því eingöngu um skil á tryggingum.Verði staðið við gerða samninga er eigið fé VBS ekki í hættu vegna þessa. En vanefndir á samningnum af hálfu mótaðila VBS hefðu neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira