Wa-Mu aðferðin Björn Ingi Hrafnsson skrifar 17. nóvember 2008 03:00 Tilkynnt var í gær, vonum seinna, um samkomulag við Breta, Hollendinga og aðrar þjóðir Evrópusambandsins um lyktir Icesave-málsins, einhverrar harðvítugustu milliríkjadeilu í sögu þjóðarinnar. Niðurstaðan er sú að Íslendingar ábyrgjast lágmarksinnstæðutryggingar vegna innlánsreikninganna margfrægu og fá til þess gríðarhá lán frá þjóðum innan Evrópusambandsins, en fá svo tækifæri til þess að koma eignum gamla Landsbankans í verð á móti. Með þessu vonast bjartsýnir menn til þess að íslenska ríkið og þar með þjóðin komi út á sléttu, þar sem eignir bankans hafi verið töluvert umfram skuldir. En hinir svartsýnu áætla að þar með geti fallið á þjóðina skuldbinding til lengri framtíðar upp á jafnvel nokkur hundruð milljarða króna og munar um minna. Deilan vegna Icesave-innlánsreikninganna kom upp nokkru fyrir hrun íslensku bankanna, eins og frægt samtal íslenska og breska fjármálaráðherrans vitnaði um. Hingað til hafa íslensk stjórnvöld haldið því fram að sú flókna deila hefði ekkert með neyðaraðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að gera, hvað þá mögulegar lánveitingar fleiri ríkja, okkur til handa. Þetta væru tvö óskyld mál. Annað hefur komið á daginn og síðustu daga hefur öllum verið ljóst að ekkert yrði af aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr en Icesave-deilan yrði til lykta leidd. Flest bendir raunar til að íslenskum stjórnvöldum hafi mátt vera ljós sú afstaða sjóðsins allan tímann. Wa-Mu aðferð Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans, sem hann kynnti í frægu Kastljósviðtali, stæðist ekki alþjóðalög og gæti leitt til algerrar einangrunar Íslands á alþjóðavettvangi. Rifjum upp þegar formaður bankastjórnar Seðlabankans kvað upp úr með það, að ekki stæði til að greiða erlendar skuldir „óreiðumanna". Þvert á móti stæði til að fara sömu leið og Bandaríkjamenn hefðu gert við gjaldþrot Washington Mutual bankans (WaMu). „Við skiptum bönkunum upp í innlenda og erlenda starfsemi. Við tökum eigið féð að meginefni til og látum það fylgja erlendu starfseminni. Þannig að erlendu kröfuhafarnir fá meira í sinn hlut en sem nemur innlendu starfseminni," sagði Davíð þá og taldi að erlendir kröfuhafar hefðu þetta 5 til 15 prósent upp í kröfur sínar. „Tiltölulega mjög fljótlega þá erum við með ríki sem er skuldlaust, eða skuldlítið í erlendum skuldum, og við erum skyndilega með þjóðarskuldir sem eru orðnar sáralitlar," sagði Davíð og bætti við: „Menn verða að átta sig á því að við erum að draga úr skuldafargi þjóðarinnar, en ekki auka það. Það tekur tíma að síast inn." Varla þarf að orðlengja það, að nær ekkert af þessari djörfu áætlun, sem sett var fram fyrir aðeins fáum vikum, hefur gengið eftir. Við ætluðum að draga úr „skuldafargi þjóðarinnar" en verðum þess í stað ein skuldsettasta þjóð heims. Orðspor okkar hefur beðið hnekki, því við-borgum-ekki-áætlun stjórnvalda var talin ógn við evrópskan fjármálastöðugleika, hvorki meira né minna. Þannig fór um hina íslensku Wa-Mu aðferð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Tilkynnt var í gær, vonum seinna, um samkomulag við Breta, Hollendinga og aðrar þjóðir Evrópusambandsins um lyktir Icesave-málsins, einhverrar harðvítugustu milliríkjadeilu í sögu þjóðarinnar. Niðurstaðan er sú að Íslendingar ábyrgjast lágmarksinnstæðutryggingar vegna innlánsreikninganna margfrægu og fá til þess gríðarhá lán frá þjóðum innan Evrópusambandsins, en fá svo tækifæri til þess að koma eignum gamla Landsbankans í verð á móti. Með þessu vonast bjartsýnir menn til þess að íslenska ríkið og þar með þjóðin komi út á sléttu, þar sem eignir bankans hafi verið töluvert umfram skuldir. En hinir svartsýnu áætla að þar með geti fallið á þjóðina skuldbinding til lengri framtíðar upp á jafnvel nokkur hundruð milljarða króna og munar um minna. Deilan vegna Icesave-innlánsreikninganna kom upp nokkru fyrir hrun íslensku bankanna, eins og frægt samtal íslenska og breska fjármálaráðherrans vitnaði um. Hingað til hafa íslensk stjórnvöld haldið því fram að sú flókna deila hefði ekkert með neyðaraðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að gera, hvað þá mögulegar lánveitingar fleiri ríkja, okkur til handa. Þetta væru tvö óskyld mál. Annað hefur komið á daginn og síðustu daga hefur öllum verið ljóst að ekkert yrði af aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr en Icesave-deilan yrði til lykta leidd. Flest bendir raunar til að íslenskum stjórnvöldum hafi mátt vera ljós sú afstaða sjóðsins allan tímann. Wa-Mu aðferð Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans, sem hann kynnti í frægu Kastljósviðtali, stæðist ekki alþjóðalög og gæti leitt til algerrar einangrunar Íslands á alþjóðavettvangi. Rifjum upp þegar formaður bankastjórnar Seðlabankans kvað upp úr með það, að ekki stæði til að greiða erlendar skuldir „óreiðumanna". Þvert á móti stæði til að fara sömu leið og Bandaríkjamenn hefðu gert við gjaldþrot Washington Mutual bankans (WaMu). „Við skiptum bönkunum upp í innlenda og erlenda starfsemi. Við tökum eigið féð að meginefni til og látum það fylgja erlendu starfseminni. Þannig að erlendu kröfuhafarnir fá meira í sinn hlut en sem nemur innlendu starfseminni," sagði Davíð þá og taldi að erlendir kröfuhafar hefðu þetta 5 til 15 prósent upp í kröfur sínar. „Tiltölulega mjög fljótlega þá erum við með ríki sem er skuldlaust, eða skuldlítið í erlendum skuldum, og við erum skyndilega með þjóðarskuldir sem eru orðnar sáralitlar," sagði Davíð og bætti við: „Menn verða að átta sig á því að við erum að draga úr skuldafargi þjóðarinnar, en ekki auka það. Það tekur tíma að síast inn." Varla þarf að orðlengja það, að nær ekkert af þessari djörfu áætlun, sem sett var fram fyrir aðeins fáum vikum, hefur gengið eftir. Við ætluðum að draga úr „skuldafargi þjóðarinnar" en verðum þess í stað ein skuldsettasta þjóð heims. Orðspor okkar hefur beðið hnekki, því við-borgum-ekki-áætlun stjórnvalda var talin ógn við evrópskan fjármálastöðugleika, hvorki meira né minna. Þannig fór um hina íslensku Wa-Mu aðferð.
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun