Fjallað um fundarhöld og erfiðleika í helstu blöðum heims 6. október 2008 08:00
Fjallað er um hin stífu fundarhöld í Ráðherrabústaðnum um helgina í öllum helstu blöðum Bretlands í morgun og sömuleiðis í hinu bandaríska Wall Street Journal. Í því síðastnefnda segir að ríkisstjórnin hafi ásamt bönkunum reynt að útvega það lausafé sem þurfi til þess að bjarga bankakerfi landsins enda hafi efnahagskerfið á Íslandi fundið einna mest fyrir hinni alþjóðlegu efnahagskreppu. Bent er á gríðarlegan uppgang íslensku bankanna á síðustu árum sem gæti reynst þeim erfiður á næstunni og enn fremur er sagt að krónan hafi hrunið. Þá segir breska blaðið Finacial Times að forsætisráðherra og Seðlabankinn hafi átt neyðarviðræður við stjórnir lífeyrissjóða og banka í von um að leysa lausafjárkreppu í landinu. Lífeyrissjóðirnir hafi verið beðnir um að selja hluta eigna sinna í útlöndum og þá leiti Seðlabankinn eftir láni til að auka gjaldeyrisforðann. Þar er einnig sagt að ríkisstjórnin muni hugsanlega tilkynna um aukinn gjaldeyrisforða nú í morgunsárið en þó sé ekkert öruggt þar um. Þá segir Financial Times enn fremur að mikillvægasta en jafnframt umdeildasta ákvörðun stjórnvalda hafi verið að kaupa 75 prósenta hlut í Glitni. Seðlbankinn hafi sagt það eina kostinn í stöðunni en Jón Ásgeir Jóhannesson, hluthafi í Stoðum sem á stóran hlut í Glitni, og Richard Portes, prófessor við London School of Economics, hafi gagnrýnt aðgerðirnar. Breska blaðið Times slær upp fyrirsögninni „Lamað Ísland sendir út fjármálalegt neyðarkall". Þar kemur enn fremur fram að íslensk stjórnvöld hafi leitað á náðir Bandaríkjamanna og hinna norrænu ríkjanna til þess að bjarga efnahag landsins. Sagt er að íslensku bankarnir hafi verið undir þrýstingi stærstan hluta ársins og glími við gríðarlega verðbólgu hér á landi, minnkandi virði gjaldmiðilsins og afleiðingar ofhitnaðs hagkerfis. Seðlabankinn hafi reynt að berjast við verðbólguna með því að hækka stýrivexti í 15,5 prósent sem geri bönkunum enn erfiðara fyrir að fjármagna starfsemi sína.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira