Reykjanesbær í viðræðum um að hjálpa SpKef 9. október 2008 11:09 Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær vinnur nú að því að koma Sparisjóði Keflavíkur til hjálpar í því óveðri sem gengur yfir íslenskt fjármálakerfi. Bæjarstjórinn Árni Sigfússon segir í samtali við Vísi að verið sé að skoða málið „mjög alvarlega". „Við erum reiðubúin að skoða það mjög alvarlega að koma að Sparisjóði Keflavíkur með einhverjum hætti," segir Árni. Hann segir ýmsar leiðir færar í því efni. „hér eru hundruð manna stofnfjáreigendur, mest eldra fólk sem á þarna mest sitt sparifé. Við höfum góðar vonir um að það verði hægt að vinna með sparisjóðnum til þess að hann standist þessi áföll." Árni segir að rætt sé um að leggja inn aukið sparifé til sjóðsins og þá í samstarfi við ríkið, önnur sveitarfélög og lífeyrissjóði, þannig að hægt verði að styðja sparisjóðina áfram. „Við höfum verið að fara yfir þessi mál undanfarna daga og erum vongóð um að Sparisjóðurinn í Keflavík standist þetta, að hann verði í nægilega góðum björgunarbúnaði. Það er mjög mikilvægt að menn standi með sparisjóðnum í sínu sveitarfélagi og við gerum það hér í Reykjanesbæ," segir Árni. Hann bendir á að í þeim stærðum sem rætt er um í dag sé Sparisjóður Keflavíkur lítill banki, „en gríðarlega mikilvægur fyrir þetta samfélag og við teljum okkur hafa bolmagn til að vinna þetta verk," segir bæjarstjórinn að lokum.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira