Viðskipti innlent

Hnútar að leysast í Bretlandi að sögn SÍ

Bankastjórn Seðlabankans og aðalhagfræðingur.
Bankastjórn Seðlabankans og aðalhagfræðingur.
Sá hnútur sem hefur orðið á í greiðsluflæði milli Íslands og Bretlands virðist hafa verið leystur að mestu, ef marka má tilkynningu frá Seðlabanka Íslands. Bankinn segir að búast megi við að það taki nokkra daga að koma greiðslum í eðlilegt horf.

Fjármálaráðuneyti Bretlands gaf 17. október 2008 út nánari yfirlýsingu vegna frystingar eigna gamla Landsbankans. Þar kemur fram að aðgerðir breskra yfirvalda snúi aðeins að tilteknum þáttum í starfsemi gamla Landsbankans. Vonir standi til að í kjölfar þessa takist að losa um stærstan hluta þeirra takmarkana sem verið hafi á greiðslustreymi milli Íslands og Bretlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×