Viðskipti innlent

Ákveðið í dag hvort lífeyrissjóðir leggi fram tilboð í Kaupþing

Það ræðst í dag hvort fimm lífeyrissjóðir leggi fram kauptilboð í hluta Kaupþings.

Viðræður um málið eru komnar á skrið og rætt er um að sjóðirnir eignist nauman meirihluta að því er fram kemur í Fréttablaðinu. Þar er einnig sagt að stjórnvöld hafi tekið vel í aðkomu sjóðanna að bankanum.

Haft er eftir Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra í blaðinu að sér lítist ákaflega vel á hugmyndina. Hann bætir því við að lífeyrissjóðirnir muni gegna mikilvægu hlutverki í því endureisnarstarfi sem nú sé framundan á Íslandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×