Viðskipti innlent

Ársreikningaskrá fær refsivönd með vorinu

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Guðmundur Guðbjarnason Forstöðumaður Árreikninga­skrár segir að áður en nýjum sektarheimildum stofnunarinnar verði beitt þurfi að vinsa „dauð félög“ úr hópi þeirra sem trassað hafa að skila ársreikningum. Markaðurinn/Anton
Guðmundur Guðbjarnason Forstöðumaður Árreikninga­skrár segir að áður en nýjum sektarheimildum stofnunarinnar verði beitt þurfi að vinsa „dauð félög“ úr hópi þeirra sem trassað hafa að skila ársreikningum. Markaðurinn/Anton
Fyrirtæki sem enn eiga eftir að skila ársreikningum vegna ársins 2006 eru 2.250 talsins, samkvæmt upplýsingum frá Ársreikningaskrá. Hluti þeirra er með enn lengri hala og hefur ekki skilað reikningum árum saman.

Guðmundur Guðbjarnason, forstöðumaður Ársreikningaskrár, segir fyrirtæki hins vegar hafa tekið vel við sér eftir að stofnunin sendi í byrjun árs út áminningarbréf til vanskilafyrirtækja. Þar var bent á að í ár hefðu tekið gildi lög sem heimiluðu að beita fyrirtæki sem ekki skiluðu ársreikningum dagsektum frá 10 til 100 þúsunda króna á dag. „Eftir þá aðgerð hafa borist um fjögur þúsund ársreikningar,“ segir hann, en mest barst fljótlega eftir áminningu, en hefur svo heldur hægt á innsendingum síðan.

Guðmundur áréttar að þótt félögin sem enn eiga eftir að skila séu mörg þurfi í því samhengi að athuga að innan um séu ótal smáfélög og einyrkjar sem jafnvel hafi trassað að afskrá félög sem löngu séu hætt starfsemi. „Hluti af þessum félögum er á leið í gjaldþrot og svo verður bara reynt að afskrá önnur sem dauð félög. Það er miklu vænlegra en að vera að sekta dauð félög,“ segir hann. „En auðvitað eru þarna innan um félög sem ættu að hafa séð sóma sinn í að skila, en önnur eru nú bara þannig að þau láta hafa fyrir sér.“

Enn er ekki farið að koma til þess að beita dagsektum á fyrirtæki og verður ekki fyrr en til reiðu verður í fjármálaráðuneytinu reglugerð þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd þeirra. „Vinna við umrædda reglugerð er á lokastigi,“ segir Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri. Guðmundur Guðbjarnason segist hafa fengið þau svör úr ráðuneytinu að lokavinnsla reglugerðarinnar hafi tafist aðeins vegna anna við gerð lagafrumvarpa. „En þetta er til í handriti og kemur bara núna í maímánuði,“ segir hann.

Komi til þess að Ársreikningaskrá beiti fyrirtæki sem ekki hafa skilað ársreikningum dagsektum verður það í fyrsta sinn sem slíkt er gert með þeim hætti. „Reyndar eru til dæmi um sektir frá dómstólum, en þau eru bara svo fá. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem Ársreikningaskrá fær þessa heimild beint.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×