Ársreikningaskrá fær refsivönd með vorinu Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. maí 2008 05:30 Guðmundur Guðbjarnason Forstöðumaður Árreikningaskrár segir að áður en nýjum sektarheimildum stofnunarinnar verði beitt þurfi að vinsa „dauð félög“ úr hópi þeirra sem trassað hafa að skila ársreikningum. Markaðurinn/Anton
Fyrirtæki sem enn eiga eftir að skila ársreikningum vegna ársins 2006 eru 2.250 talsins, samkvæmt upplýsingum frá Ársreikningaskrá. Hluti þeirra er með enn lengri hala og hefur ekki skilað reikningum árum saman. Guðmundur Guðbjarnason, forstöðumaður Ársreikningaskrár, segir fyrirtæki hins vegar hafa tekið vel við sér eftir að stofnunin sendi í byrjun árs út áminningarbréf til vanskilafyrirtækja. Þar var bent á að í ár hefðu tekið gildi lög sem heimiluðu að beita fyrirtæki sem ekki skiluðu ársreikningum dagsektum frá 10 til 100 þúsunda króna á dag. „Eftir þá aðgerð hafa borist um fjögur þúsund ársreikningar,“ segir hann, en mest barst fljótlega eftir áminningu, en hefur svo heldur hægt á innsendingum síðan. Guðmundur áréttar að þótt félögin sem enn eiga eftir að skila séu mörg þurfi í því samhengi að athuga að innan um séu ótal smáfélög og einyrkjar sem jafnvel hafi trassað að afskrá félög sem löngu séu hætt starfsemi. „Hluti af þessum félögum er á leið í gjaldþrot og svo verður bara reynt að afskrá önnur sem dauð félög. Það er miklu vænlegra en að vera að sekta dauð félög,“ segir hann. „En auðvitað eru þarna innan um félög sem ættu að hafa séð sóma sinn í að skila, en önnur eru nú bara þannig að þau láta hafa fyrir sér.“ Enn er ekki farið að koma til þess að beita dagsektum á fyrirtæki og verður ekki fyrr en til reiðu verður í fjármálaráðuneytinu reglugerð þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd þeirra. „Vinna við umrædda reglugerð er á lokastigi,“ segir Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri. Guðmundur Guðbjarnason segist hafa fengið þau svör úr ráðuneytinu að lokavinnsla reglugerðarinnar hafi tafist aðeins vegna anna við gerð lagafrumvarpa. „En þetta er til í handriti og kemur bara núna í maímánuði,“ segir hann. Komi til þess að Ársreikningaskrá beiti fyrirtæki sem ekki hafa skilað ársreikningum dagsektum verður það í fyrsta sinn sem slíkt er gert með þeim hætti. „Reyndar eru til dæmi um sektir frá dómstólum, en þau eru bara svo fá. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem Ársreikningaskrá fær þessa heimild beint.“
Mest lesið Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Samstarf Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Sjá meira