Fasteignasala var heimilt að skuldajafna með vörslufé 17. apríl 2008 17:37 Andrés Pétur Rúnarsson. Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala sá ekki ástæðu til að bregðast við kvörtun hans.
Fasteignasali hefur heimild til þess að greiða skuld viðskiptamanns við hann með fjárvörslufé að því gefnu að um eiginlega skuld sé að ræða og skilyrðum skuldajöfnunar sé fullnægt. Þetta er niðurstaða eftirlitsnefndar Félags fasteignasala, sem barst kvörtun frá Andrési Pétri Rúnarssyni, athafnamanni. Í október kvartaði Andrés undan starfsháttum Ernu Valsdóttur fasteignasala við eftirlitsnefndina. Andrés gerði athugasemd við það að Erna hefði haldið eftir hluta af kaupverði fasteignar við Trönuhraun í Hafnarfirði að upphæð 376 þúsund krónum. Seljandi fasteignarinnar var L 94 ehf, sem Andrés Pétur er í forsvari fyrir. Í svari Ernu til eftirlitsnefndarinnar kom fram að hún hefði selt fasteign við Austurmörk í Hveragerði fyrir L-94 ehf. Eftir þá sölu hafi staðið eftir ógreidd söluþóknun að fjárhæð 340 þúsund krónur. Við sölu fasteignar fyrir sama félag við Trönuhraun 7 í Hafnarfirði hafi Erna ráðstafað hluta af söluandvirðinu til greiðslu á eftirstöðvum skuldar L-94 ehf. Vísaði Erna til reglugerðar um fjárvörslureikninga fasteignasala máli sínu til stuðnings. Eftirlitsnefndin tekur ekki afstöðu til ágreinings um skuld Andrésar við Ernu. Nefndin kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Ernu sé heimilt að greiða skuld Andrésar við sig með fjárvörslufé, að því gefnu að um eiginlega skuld sé að ræða og skilyrðum skuldajöfnunar sé fullnægt. Því sér nefndin ekki ástæðu til að bregðast við kvörtun Andrésar.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira