Viðskipti innlent

Evran yfir 140 krónur í fyrsta sinn

MYND/AP

Krónan hefur fallið um þrjú prósent í morgun og hefur gengi hennar aldrei fyrr verið jafnt lágt og nú. Evran er komin yfir 140 krónur og bandaríkjadollar í 97 krónur.

Þegar gengisvísitalan fór í 178 í síðustu viku nefndi Davíð Oddsson seðlabankastjóri að þetta væri sama tala og hæð sín í sentímetrum og taldi þá krónan hefði þá náð sínu lægsta gildi. Í morgun fór gengisvísitalan í 183 sem þýðir enn meiri gengislækkun.

Aldrei fyrr hafa Íslendingar þurft að greiða jafnt hátt verð fyrir erlendar myntir. Samkvæmt opinberu sölugengi Seðlabankns kostar Bandaríkjadalur nú 97 krónur, sterlingspund kostar 178, danska krónan er komin undir 19 krónur og evran í 141 krónu.

Íslensk hlutabréf hafa einnig lækkað í morgun og hafði úrvalsvísitalan nú skömmu fyrir hádegi lækkað um 1,2 prósent. Mest hafði SPRON lækkað eða um 8 prósent og stóru visðkiptabankarir höfðu allir lækka um og yffir eitt prósent.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×