Viðskipti innlent

Stjórnendabreytingar hjá Eimskipum

Gylfi Sigfússon verður áfram forstjóri Eimskips.
Gylfi Sigfússon verður áfram forstjóri Eimskips.

Breytingar hafa verið gerðar á stjórnendahópi Eimskips eftir því sem fram kemur í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Hilmar Pétur Valgarðsson, Steingrímur Sigurðsson, Ingvar Sigurðsson og Ásbjörn Skúlason hafa verið ráðnir framkvæmdastjórar hjá félaginu og verða í hópi lykilstjórnenda.

Þá hefur Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs, óskað eftir því að láta af störfum en hann er að hefja mastersnám í Bandaríkjunum. Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri lögfræðisviðs mun jafnframt stýra samskiptasviði félagsins.

„Guðmundur Nikulásson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri starfsemi Eimskips á Íslandi sem heyrir undir Guðmund P. Davíðsson framkvæmdastjóra Eimskips á Íslandi. Bragi Þór Marinósson verður nú framkvæmdastjóri Eimskips í Evrópu," segir í tilkynningunni.

Þar er einnig haft eftir Gylfa Sigfússyni, forstjóra Eimskips, að félagið hafi að undanförnu unnið markvisst að skipulagsbreytingum til samræmis við nýja stefnumótun stjórnar þar sem flutningar séu skilgreindir sem kjarnastarfsemi félagsins. „Umræddir stjórnendur þekkja allir vel til þeirrar starfsemi og mun reynsla þeirra nýtast félaginu vel á komandi misserum," segir í Gylfi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×