Flugvöllurinn fari með hraði Örn Sigurðsson skrifar 23. júní 2008 00:01 Hjörleifur Sveinbjörnsson eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar og einn helsti pólitíski ráðgjafi hennar skrifar undarlega grein í Fréttablaðið 2. júní sl. um flugvallarmálið. Þar leggur hann til minnkaðan og tilfluttan Reykjavíkurflugvöll innan Vatnsmýrarsvæðisins til að leysa þá stórstyrjöld, sem hann telur geysa um flugvallarmálið. En það sem Hjörleifur Sveinbjörnsson nefnir ekki en hlýtur þó að vita um er að gerð var skýrsla um þetta flugvallarmál á vegum fyrrverandi samgönguráðherra og birtist hún vorið 2007. Í þessari faglegu skýrslu er komist að því að það kostar þjóðarbúið a.m.k. 3,5 milljarða kr. á ári að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýri og tæknilega og fjárhagslega boðlegir kostir bjóðast í staðinn á Hólmsheiði og í Keflavík. Vegna andstöðu landsbyggðarfólks við Keflavík blasir Hólmsheiði við sem pólitískt ásættanleg staðsetning. En hvað skeður þá? Samgönguráðherra Samfylkingarinnar dregur lappirnar við að ljúka veðurathugunum á Hólmsheiði með því að vilja ekki láta fara fram tölvuhermun á veðrinu þar, sem kostar um 6 milljónir kr og tekur um 6 vikur, til þess að geta borið því formsatriði við að ekki sé unnt að ákveða hvort mögulegt sé að flytja Reykjavíkurflugvöll upp á Hólmsheiði vegna þess að veðurathugunum þar sé ekki lokið! Þetta er formsatriði vegna þess að samkvæmt núverandi þekkingu á veðri er lendandi á Hólmsheiði í a.m.k. 96% tilvika. Allar frekari veðurathuganir þarna eru í raun einungis til að finna út hvar á bilinu 96-98% af árinu sé lendandi á þessum stað og 95% nýting telst viðunandi lágmark. Ég er hér með tillögu að aðgerðaráætlun fyrir Hjörleif Sveinbjörnsson, sem greinilega vill láta til sín taka á þessu sviði: Undirritaður leggur til að hann taki málið upp við formanninn sinn og biðji hann um að hnippa í Kristján L. Möller samgönguráðherra í því skyni að hann láti fara fram tölvuhermun á veðrinu á Hólmsheiði og liggur þá fyrir innan nokkurra mánuða að veðrið þar er í góðu lagi”. Þegar Hjörleifur Sveinbjörnsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Kristján L. Möller hafa afrekað þetta er ekkert því til fyrirstöðu að flytja Reykjavíkuflugvöll upp á Hólmsheiði og uppfylla þannig niðurstöðu almennra kosninga frá árinu 2001, sem formaður Samfylkingarinnar hefur hingað til talið pólitískt og siðferilega bindandi niðurstöðu. Tal Hjörleifs Sveinbjörnssonar um flugvöll í Torontó vekur furðu. Toronto City Centre Airport liggur á eyjum og uppfyllingum í Ontariovatni, nokkur hundruð metra frá landi, beint undan miðborginni. Hann er í eigu alríkisstjórnarinnar og hafnaryfirvalda í Toronto, sem vilja stækka hann og margfalda flugumferð en mikil andstaða er meðal borgarbúa, sem vilja að flugvöllurinn verði lagður niður. Hjörleifur ætti að þekkja íslenskar aðstæður ögn betur. Reykjavíkurflugvöllur var byggður í seinna stríði í óþökk Reykvíkinga á kjörlendinu, sem þeir fengu 1. janúar 1932 til að stækka bæinn. Þar hefur ríkisvaldið viðhaldið honum æ síðan gegn vilja og hagsmunum borgarbúa með hóflausri misbeitingu illa fengins valds, með misvægi atkvæðanna.Höfundur er arkitekt og stjórnarmaður í Samtökum um betri byggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason Skoðun 100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun Tækifæri og áskoranir í samningaviðræðum við ESB Vilborg Ása Guðjónsdóttir Skoðun Halldór 12.04.2026 Halldór Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Tækifæri og áskoranir í samningaviðræðum við ESB Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun 100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen skrifar Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson skrifar Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun