Ramos er sáttur við reiði Keane 16. mars 2008 23:30 Robbie Keane brást hinn versti við þegar honum var skipt af velli í dag NordcPhotos/GettyImages
Juande Ramos stjóri Tottenham sagði sína menn hafa verið barnalega þegar þeir glutruðu niður forskoti sínu og færðu Manchester City fyrsta heimasigur sinn á árinu í dag. Robbie Keane kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik en þeir Stephen Ireland og Nedum Onuoha tryggðu City sigurinn með tveimur mörkum seint í leiknum. "Við réðum ferðinni í leiknum en það er eins og menn hafi bara ákveðið að þetta hafi verið búið þegar þeir skoruðu," sagði Ramos. Sumir vildu meina að Ireland hafi verið rangstæður þegar hann skoraði jöfnunarmark City og Tottenham fékk dæmt af sér mark undir lokin vegna rangstöðu.Aðstoðarstjórinn Gus Poyet kennir dómaranum hinsvegar alls ekki um tapið og segir leikmenn sína geta kennt sjálfum sér um hvernig fór.Athygli vakti að Robbie Keane brást hinn versti við þegar honum var skipt af velli í síðari hálfleiknum, en Juande Ramos ákvað að líta jákvætt á uppákomuna."Við munum fara yfir þetta mál en ég á ekki von á því að mikið verði úr því. Þetta sýndi bara svart á hvítu hvað hann þráir að spila hverja mínútu. Það er skapgerð sem ég kann að meta og svona menn viljum við hafa hj´ða félaginu. Auðvitað verða menn reiðir þegar þeim er skipt af velli, en við verðum að skipta mínútunum eitthvað á milli manna," sagði Ramos.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira