Viðskipti innlent

Utanríkisráðherra Noregs á leið til Íslands til að ræða fjármálin

Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs kemur í heimsókn til Íslands á sunnudaginn 2. nóvember til viðræðna um fjármálakreppuna hér.

Heimsókn þessi hefur staðið til lengi en hefur fengið aukið mikilvægi í ljósi stöðunnar á Íslandi.

Aftenposten spurði ráðherrann hvort hann myndi hafa ákveðnar áætlanir um aðstoð við Íslendinga með í farteskinu. "Við sjáum málin í því ljósi að fleiri lönd þurfi að sameinast um afstöðuna til Íslands," svarði ráðherrann.

Störe segir ennfremur að hann sé í sambandi við aðra norræna samráðherra sína vegna stöðunnar á Íslandi.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×