Viðmótið er borðsiðunum mikilvægara Óli Kristján Ármannsson skrifar 16. apríl 2008 02:00 Bergþór Pálsson Í hjáverkum kennir Bergþór Pálsson óperusöngvari fólki borðsiði og hefur haldið fyrirlestra og námskeið fyrir bæði fyrirtæki og félagasamtök. Markaðurinn/Valli
Á morgun, fimmtudag, heldur Bergþór Pálsson óperusöngvari svokallað etiquette-námskeið á vegum Útflutningsráðs þar sem fólki úr viðskiptalífinu eru kenndir „réttir“ borðsiðir. Bergþór hefur í hjáverkum sinnt því að fjalla um og kenna borðsiði og framkomu og hefur meðal annars ritað bók um efnið. Námskeiðið á morgun er endurtekning á öðru sambærilegu sem haldið var í febrúar. Vegna þess að á þessu námskeiði er sérstaklega lagt upp með að kenna fólki úr viðskiptalífinu borðsiði lék blaðamanni forvitni á að vita hvort þar giltu önnur lögmál en annars staðar. „Í rauninni er enginn grundvallarmunur. Hins vegar skiptir mjög miklu máli að koma vel fyrir þegar maður hittir viðskiptavini sem maður þekkir ekki,“ segir hann og bendir á að fæstir hafi á því mikinn áhuga hvernig náunginn heldur á glasi eða hnífapörum, heldur sé það viðmót og áhugi á manneskjunni sem mestu skipti. „Hitt er svo annað mál að ágætt er að vera með helstu reglur á hreinu, því þá líður manni betur sjálfum. Maður er þá öruggari og þarf ekki að hafa af því áhyggjur að einhver sé að fylgjast með því að maður geri einhverjar vitleysur.“ Meðal hluta sem Bergþór segir að ágætt sé að hafa sérstaklega í huga í „viðskiptadinner“, þar sem fólk er jafnvel að hittast í fyrsta sinn, er að kynna sér hvaðan borðfélagarnir koma, svo sem venjur í landi þess sem setið er til borðs með. „Þannig geta verið hlutir sem þarf að varast í mat og eins geta samskiptareglur verið öðruvísi í fjarlægum löndum.“ Aukinheldur segir hann gríðarmiklu máli skipta að vera á réttum tíma, hvort sem maður er í hlutverki gests eða gestgjafa. „Fólk í viðskiptalífinu hefur yfirleitt mjög þétta dagskrá og maður fær alltaf prik ef maður virðir það.“ Þá nefnir Bergþór ýmsa smáhluti sem gott geti verið að hafa í huga þegar borðað er með útlendingum, svo sem að hafa heiðursgestinn hægra megin við gestgjafann. „Það er svona þumalputtareglan og eins að ef maður er gestur að setjast ekki til borðs nema að maður viti hvar maður á að sitja og alls ekki á undan gestgjafanum.“ Viðmótið er hins vegar það sem öllu máli skiptir og jafnvel húmor líka, að sögn Bergþórs, og um að gera að láta ekki samskiptareglur taka sig á taugum. „Ef maður gerir mistök þá er það allt í lagi og bjargast fyrir horn ef maður gerir grín að því.“
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira