Vegagerðin er ekki eins og ríki í ríkinu 23. júlí 2008 12:58
Ákvarðanir um vegalagningu, til dæmis varðandi Dettifossveg, Lyngdalsheiðarveg og Vestfjarðaveg um Teigsskóg, eru ekki teknar að óathuguðu máli. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Vegagerðin hefur sent frá sér vegna ummæla Bergs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Landverndar. Bergur segir að málum þar sem framferði Vegagerðarinnar sé í hæsta máta ámælisvert fari fjölgandi. Vegagerðin sé farin að haga sér eins og ríki í ríkinu Vegagerðin segist leggja fram möguleikana og mæli gjarnan með einum umfram annan. Mat á umhverfisáhrifum fari fram þar sem farið er yfir þá þætti sem snúi að umhverfinu og náttúrunni. Skipulagsyfirvöld, eða sveitastjórnir, taki síðan ákvörðun um skipulag og þar með talda veglínuna og gefi út framkvæmdaleyfi. Allt þetta ferli taki gjarnan nokkur ár og síðan bætast við samningar við landeigendur. „Vegagerðin tekur þannig ekki ákvörðunina um hvaða leið verður endanlega fyrir valinu þótt Vegagerðin færi rök fyrir því afhverju hún telji einn kost öðrum betri. Má til dæmis varðandi Dettifossveg nefna að árið 2001 var stofnaður samráðshópur sem í áttu sæti fulltrúar sveitarfélaga, Náttúruverndar ríkisins, Ferðamálaráðs og Samtaka ferðaþjónustunnar auk Vegagerðarinnar sem komst að þeirri sameiginlegu niðurstöðu síðla árs 2002 að legga veginn vestan Jökulsár," segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Tengdar fréttir Segir samgönguráðherra skorta skilning eða pólitískt þor Kristján L. Möller skortir skilning á náttúruvernd eða pólitískt þor til að taka tillit til náttúruverndarsjónarmiða, að sögn Bergs Sigurðssonar framkvæmdastjóra Landverndar. Hann segir Vegagerðina vera ríki í ríkinu. 23. júlí 2008 10:37 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira
Segir samgönguráðherra skorta skilning eða pólitískt þor Kristján L. Möller skortir skilning á náttúruvernd eða pólitískt þor til að taka tillit til náttúruverndarsjónarmiða, að sögn Bergs Sigurðssonar framkvæmdastjóra Landverndar. Hann segir Vegagerðina vera ríki í ríkinu. 23. júlí 2008 10:37