Með leikheimild hjá KSÍ þrátt fyrir að hafa viðbeinsbrotið dómara Andri Ólafsson skrifar 22. maí 2008 15:48 Davíð Smári Helenarson "
Mér finnst þetta algjörlega fyrir neðan allar hellur," segir Valur Steingrímsson knattspyrnudómari sem viðbeinsbrotnaði eftir árás Davíðs Smára Helenarsonar í knattspyrnuleik í utandeildinni síðasta sumar. Þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í eins árs bann af utandeildinni fyrir árásina er Davíð nú aftur kominn á fullt í fótboltanum. Nú með knattspyrnuliði Álftnesinga í 3. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Ástæðan fyrir því að það er mögulegt er sú að utandeildin tilheyrir ekki Knattspyrnusambandi Íslands. Það kom því aldrei inn á borð sambandsins að Davíð hefði undir lok leiks FC Dynamo og Vatnaliljanna ráðist á dómara leiksins og viðbeinsbrotið hann. Sambandið afgreiddi því félagsskipti hans í lið Álftnesinga í vor og hefur Davíð staðið á milli stanganna hjá liðinu í undanförnum leikjum. Valur Steingrímsson, sem varð fyrir árás Davíðs síðasta sumar, skilur ekkert í Álftnesingum að vilja hafa slíkan ofbeldismann í liði sínu. Hann segist hafa heyrt af því að dómarar muni neita að dæma leiki sem Davíð kemur nálægt en segist ekki vita hvort þeir hafi látið verða af því. Valur var frá vinnu í töluverðan tíma eftir árás Davíðs og kærði málið til lögreglu. Síðan þá hefur Davíð gerst sekur um fleiri líkanmsárásir sem bíða meðferðar dómstóla. Einn þeirra var á landsliðsmann í knattspyrnu, Hannes Þ. Sigurðsson, en hann var frá æfingum í nokkurn tíma eftir að hafa kinnbeinsbrotnað í viðskiptum sínum við Davið Smára. Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ þekkti til máls Davíðs frá því í fyrra en segist ekki hafa vitað að hann væri kominn með leikheimild hjá Álftnesingum. Þórir segist ekki geta aðhafst neitt í máli Davíðs þar sem hann hafi ekki brotið af sér í leik á vegum sambandsins.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira