Viðskipti innlent

Rekstur ríkissjóðs 13 milljörðum kr. undir áætlun

Rekstur ríkissjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins reyndist undir rúmlega 13 milljörðum kr. undir áætlun. Munar þar mestu að greiðslur til atvinnuleysistrygginga hafa reynst minni en gert var ráð fyrir og að framkvæmdir í samgöngumálum hafa farið hægar af stað en áætlanir gerðu ráð fyrir.

 

Á vefsíðu fjármálaráðuneytisins er fjallað um málið og þar segir að heildargjöld tímabilsins námu 197,2 milljörðum kr., sem er rúmum 13 milljörðum króna undir áætlun, en fjárlög gerðu ráð fyrir að heildarútgjöld yrðu rúmir 210 milljarðar kr..

Liðurinn rekstrargjöld er tveimur milljörðum kr. undir áætlun fjárlaga en undir hann fellur allur venjulegur rekstur stofnana á vegum ríkisins.

Rekstrartilfærslur, sem eru ýmiss konar styrkir og bótagreiðslur greiddar úr ríkissjóði, eru um 4,8 milljörðum kr. innan áætlunar eftir fyrri helming ársins og munar þar mestu að greiðslur til atvinnuleysistrygginga hafa verið lægri en gert var ráð fyrir í forsendum fjárlaga.

Vaxtagöld ríkissjóðs eru nánast á áætlun, en liðurinn viðhalds- og stofnkostnaður er rúmum 6 milljörðum kr. innan áætlunar tímabilsins. Undir þennan lið falla framkvæmdir í samgöngumálum, sem farið hafa ívið hægar af stað en gert var ráð fyrir í fjárlögum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×