Stýrivextir hækkaðir upp í 15 prósent 25. mars 2008 09:03
Bankastjórn Seðlabankans hefur ákveðið að hækka stýrivexti sína um 1,25 prósent og standa stýrivextir nú í 15 prósentum. Fram kemur á heimasíðu bankans að forsendur verðbólguspár sem birtist í Peningamálum í nóvember síðastliðnum og hafi falið í sér óbreytta stýrivexti fram á síðari helming þessa árs hafi brugðist. „Verðbólga hefur reynst mun meiri en spáð var og verðbólguvæntingar hafa vaxið. Eftirspurn hefur einnig verið meiri en búist var við. Gengi krónunnar hefur lækkað töluvert meira en reiknað var með í fráviksspánni sem birt var í nóvemberhefti Peningamála. Í henni var gert ráð fyrir að brugðist yrði við slíkri þróun með hækkun stýrivaxta. Raungengi krónunnar er nú mjög nærri sögulegu lágmarki síðustu áratuga sem það náði í nóvember 2001," segir enn fremur á vef bankans. Þar segir enn fremur að gangi lækkunin ekki til baka sé einsýnt að verðbólga aukist mikið og langvarandi verðbólguvandi sé fyrir stafni ef ekkert verði að gert með tilheyrandi víxlhækkunum verðlags, launa og gengis erlendra gjaldmiðla. Bent er á að lækkun gengis krónunnar undanfarnar vikur komi einnig illa við efnahagsreikninga skuldsettra heimila og fyrirtækja, sem grafi undan stöðugleika fjármálakerfisins til lengri tíma litið. Því sé mikilvægt að gengislækkunin gangi sem fyrst til baka. „Versnandi fjármálaskilyrði í heiminum hafa leitt til þess að erfiðara er en áður að fjármagna viðskiptahalla. Aðlögun í þjóðarbúskapnum með samdrætti eftirspurnar verður því tæpast umflúin. Hún verður því sársaukafyllri sem verðbólga fær að leika lengur lausum hala. Því er óhjákvæmilegt að reka áfram mjög aðhaldssama peningastefnu þannig að böndum verði komið á verðbólgu og verðbólguvæntingar og gengi krónunnar verði traustara í sessi," segir í tilkynningunni. Vaxtaákvörðunardagurinn í dag er viðbótarvaxtaákvörðunardagur því samkvæmt áætlun átti bankinn ekki að tilkynna um vexti fyrr en 10. apríl. Það mun hann einnig gera og um leið verða gefin út Peningamál með nýrri þjóðhags- og verðbólguspá.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira