Viðskipti innlent

Kauphöllin opnuð að nýju í dag

Kauphöllin verður opnuð á ný nú á eftir en markaðurinn hefur verið lokaður frá því á fimmtudag í síðustu viku. Búast má við miklu falli úrvalsvísitölunnar við opnunina.

Kauphöllin hefur ákveðið að gengi hlutabréfa í stóru bönkunum þremur verið skráð á 0 krónur. Í tilkynningu frá kauphöllinni segir að þessi ákvörðun sé tekin þar sem kauphöllin hafi ekki fengið fullnægjandi mat á virði bankana frá markaðsaðilum eftir að Fjármálaeftirlitið greip inn í rekstur þeirra.

Mun gengið haldast í núllinu í úrvalsvísitölunni þar til annað verður ákveðið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×