Kerfisgalli en ekki trúverðugleiki helsta vandamál Seðlabankans 9. maí 2008 10:44
Trúverðugleiki er ekki helsta vandamál Seðlabankans. Núverandi verðbólguskot er vitnisburður um kerfisgalla í leiðni peningamálastefnunnar en ekki skort á trúverðugleika Seðlabankans. Of óvægin beiting stýrivaxta ofan í fjármálakreppu skapar mikla áhættu varðandi fjármálastöðugleika. Þetta kemur fram í nýrri hagspá greiningardeildar Kaupþings. Þar segir að verðbólgan mun ná hámarki í 13,5% á þriðja ársfjórðungi og mælast yfir 12% það sem eftir lifir árs. Á næsta ári dregur snöggt úr verðbólguhraða og verðbólgumarkmiðið næst á síðari helmingi ársins. Greiningin telur að vaxtahækkunarferli Seðlabankans sé lokið og framundan er afar bratt lækkunarferli sem hefst í nóvember. Í lok 2009 verða stýrivextir 7,75% og 6,75% í árslok 2010. Gengisvísitalan mun ná hámarki á þessum fjórðungi, styrkjast þegar líður á 2008 og enda árið í 142 stigum. Hér skipta fjármögnunarskilyrði bankanna og þróun á gjaldmiðlaskiptamarkaði höfuðmáli. Myndarleg aukning gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans eða jákvæðar fréttir af fjármögnun bankanna gætu flýtt bata á gjaldeyrisskiptamarkaði. Framundan er samdráttur í hagkerfinu sem mun vara fram á mitt árið 2009. Gert er ráð fyrir að einkaneysla dragist saman um 2,8% í ár og um 7,5% á því næsta - sem verður þá mesti samdráttur í einkaneyslu frá árinu 1975. Útlit er fyrir að vöruskiptahallinn snúist í afgang á næstu árum og bata á viðskiptahallanum.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Sjá meira