Ruslpóstur Íslandspósts Friðrik Haraldsson skrifar 13. mars 2008 05:00 Síðasta misserið fór að bera á verulegri aukningu ruslpósts með venjulegum pósti frá Íslandspósti. Við höfðum verið blessunarlega laus við þennan ófögnuð um langa hríð og bréfberarnir virðast hafa kunnað að lesa áberandi skilti við bréfalúguna. Nú ber svo við, að þeir virðast vera orðnir ólæsir og láta afþökkun ruslpósts sem vind um eyru þjóta. Hinn 31. janúar 2008 var mér nóg boðið eftir ítrekuð mótmæli við þjónustufulltrúa Íslandspósts hf. eða Póstsins hf. Þjónustufulltrúi sagði undirrituðum að fyrirtækið hefði hætt allri kurteisi við móttakendur pósts og gæti ekki hugsað sér annað en að ausa sem mestu rusli yfir okkur. Hann tilkynnti jafnframt, að sér væri óheimilt að segja mér, hver bæri ábyrgð á nýjum vinnureglum fyrirtækisins og hún mætti ekki gefa mér samband við neina ráðamenn þess til að mótmæla þessari ósvífni.Ég sendi Póst og fjarskiptastofnun fyrirspurn um ástandið. Mig vantar upplýsingar um rétt minn til að losna við þetta rusl og hvaða meðulum stofnunin geti beitt til að gæta réttar míns. Mig langar líka til að vita, hver viðbrögð og afleiðingar kynnu að verða, ef ég ákvæði einhliða að loka bréfalúgunni hjá mér og gera Íslandspóst ábyrgan fyrir afleiðingunum. Íslandspóstur lýsti yfir stríði, sem mig langar ekki til að taka þátt í. Þjónustufulltrúinn svaraði síðari spurningunni þannig, að pósturinn yrði geymdur í dreifingarstöð svæðisins í tvær vikur og síðan endursendur. Hún sagði einnig, að henni væri óheimilt að segja mér hver og hvar dreifingarmiðstöðin væri, þótt ég byðist til að sækja póstinn minn sjálfur. Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki svarað opinberlega enn þá þótt næstum mánuður sé liðinn síðan fyrsti tölvupóstur var sendur stofnuninni. Er virkilega löglegt að bjóða almenningi svona þverstæðubull? Íslandspóstur ætti að skammast sín.Höfundur er leiðsögumaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar Skoðun Byggjum meira félagslegt húsnæði í Reykjavík Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Börnin í Laugardalnum eiga betra skilið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Og þeir skoðra og þeir skoða og skora og skora á ný Dagmar Valsdóttir skrifar Sjá meira
Síðasta misserið fór að bera á verulegri aukningu ruslpósts með venjulegum pósti frá Íslandspósti. Við höfðum verið blessunarlega laus við þennan ófögnuð um langa hríð og bréfberarnir virðast hafa kunnað að lesa áberandi skilti við bréfalúguna. Nú ber svo við, að þeir virðast vera orðnir ólæsir og láta afþökkun ruslpósts sem vind um eyru þjóta. Hinn 31. janúar 2008 var mér nóg boðið eftir ítrekuð mótmæli við þjónustufulltrúa Íslandspósts hf. eða Póstsins hf. Þjónustufulltrúi sagði undirrituðum að fyrirtækið hefði hætt allri kurteisi við móttakendur pósts og gæti ekki hugsað sér annað en að ausa sem mestu rusli yfir okkur. Hann tilkynnti jafnframt, að sér væri óheimilt að segja mér, hver bæri ábyrgð á nýjum vinnureglum fyrirtækisins og hún mætti ekki gefa mér samband við neina ráðamenn þess til að mótmæla þessari ósvífni.Ég sendi Póst og fjarskiptastofnun fyrirspurn um ástandið. Mig vantar upplýsingar um rétt minn til að losna við þetta rusl og hvaða meðulum stofnunin geti beitt til að gæta réttar míns. Mig langar líka til að vita, hver viðbrögð og afleiðingar kynnu að verða, ef ég ákvæði einhliða að loka bréfalúgunni hjá mér og gera Íslandspóst ábyrgan fyrir afleiðingunum. Íslandspóstur lýsti yfir stríði, sem mig langar ekki til að taka þátt í. Þjónustufulltrúinn svaraði síðari spurningunni þannig, að pósturinn yrði geymdur í dreifingarstöð svæðisins í tvær vikur og síðan endursendur. Hún sagði einnig, að henni væri óheimilt að segja mér hver og hvar dreifingarmiðstöðin væri, þótt ég byðist til að sækja póstinn minn sjálfur. Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki svarað opinberlega enn þá þótt næstum mánuður sé liðinn síðan fyrsti tölvupóstur var sendur stofnuninni. Er virkilega löglegt að bjóða almenningi svona þverstæðubull? Íslandspóstur ætti að skammast sín.Höfundur er leiðsögumaður.
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar
Skoðun Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun