Eignir Exista rýrna meira en eigið fé 4. febrúar 2008 09:22 Fosvarsmenn Exista segjast vera með sterkar varnir til verjast gengistapi á bréfum félagsins í skráðum eignum.
Þrjár lykileignir Exista, Sampo, Kaupþing og Bakkavör, hafa rýrnað um 42 milljarða frá því um áramót. Í máli forsvarsmanna Exista á kynningarfundi á föstudag kom fram að eigið fé hefði ekki minnkað nema um 7,4 milljarða á sama tíma. Í ársskýrslu Exista kemur fram að bókfært virði Sampo og Kaupþings sé um 450 milljarðar en markaðsvirði félaganna um áramót var 355,7 milljarðar. Það er munur upp á 92,4 milljarða. Eigið fé Exista samkvæmt ársskýrslu var 216 milljarðar um áramót. Hlutir Exista í Sampo og Kaupþing hafa samtals rýrnað um 32,4 milljarða frá áramótum. Þegar við er bætt að hlutur Exista í Bakkavör hefur rýrnað um tæpa 10 milljarða frá bókfærðu virði í ársskýrslu myndu flestir halda að eigið fé Exista hefði minnkað sem þessu nemur eða um 42 milljarða. Það myndi þýða að eigið fé Exista væri í dag um 80 milljarðar og eiginfjárhlutfallið rétt tæp 14%. Svo er þó ekki að sögn forsvarsmanna Exista sem halda því fram að rýrnun eigin fjár félagsins sé aðeins um 7,4 milljarðar frá áramótum. Aðspurður um skýringar á þessum mun segir Sigurður Nordal, talsmaður Exista, að félagið hafi varnir gegn gengistapi á bréfum félagsins og þær skýri af hverju eigið fé minnkar ekki takt við gengistap bréfa félagsins í skráðum félögum. "Eðlilega getum við ekki gefið upp hvað varnir félagið hefur af markaðsástæðum," segir Sigurður við Vísi. Vegvísir Landsbankans sendi frá sér greiningu um eiginfjárstöðu Exista á föstudag. Þar var leitt líkum að því að eiginfjárhlutfall félagsins sé um 14% en hækki um 4% ef víkjandi lán, sem gefið var út á fjórða ársfjórnungi sé tekið með í reikninginn.
Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira