Tyrknesk mafía neyddi Bagger til svikanna að hans sögn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. desember 2008 08:37 MYND/Scanpix
Það voru glæpamenn af tyrkneskum og pakistönskum uppruna sem neyddu stórsvindlarann Stein Bagger út á glæpabrautina. Þetta var að minnsta kosti sú skýring sem Bagger gaf fyrir dómi í heimalandi sínu Danmörku í gær en þangað er hann nú kominn eftir að hann gaf sig fram við lögregluna í Los Angeles í október. Bagger er ákærður fyrir milljarðasvik með því að hafa beitt upplýsingatæknifyrirtækinu IT Factory sem eins konar peningaverksmiðju meðan hann vermdi forstjórastólinn þar. Bagger hlaut á sínum tíma dönsk viðskiptaverðlaun og þarlendur fjármálaheimur stóð hreinlega á öndinni yfir rífandi uppgangi IT Factory sem að sjálfsögðu var of góður til að vera sannur. Bagger keypti tölvubúnað sem aldrei var til af erlendum stórfyrirtækjum sem reyndar voru ekki til heldur. Það eina sem var til voru myndarlegir reikningar sem streymdu frá fyrirtækjunum og Bagger greiddi að sjálfsögðu eins og heiðarlegt fólk gerir. Almennt er talið að Bagger hafi átt í samstarfi við vélhjólasamtökin Hells Angels en þetta þvertekur hann fyrir og bendir á tyrkneska mafíu sem kúgaði hann til fjársvikanna. Er mál Baggers þá eins konar Tyrkjarán á danskri grundu?
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Fleiri fréttir Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Sjá meira