Það er auðvelt að aka varlega 31. júlí 2008 05:15 Sigurður Helgason skrifar um umferðaröryggi: Verslunarmannahelgin fer í hönd og ýmislegt bendir til þess að margir verði á ferðinni um vegi landsins. Þegar þetta er skrifað lofar veðurspáin góðu og leiðir væntanlega marga af stað út á vegina. Á síðari árum hefur þróunin verið sú, að allar helgar í júlí og fram í ágúst teljast vera umferðarhelgar. Það hefur komið glögglega í ljós að undanförnu þegar raðir hafa myndast við Hvalfjarðargöngin síðdegis og að kvöldlagi á sunnudögum. Samt hefur sú helgi sem í hönd fer sérstöðu. Aukafrídagur gefst og það hefur þau áhrif að fólk reynir að njóta hennar. En stóra spurningin er: Hvað ber helst að varast í mikilli umferð? Í hverju felst mest hætta? Reynsla undanfarinna helga hefur sýnt okkur að framúrakstur er sá þáttur sem valdið hefur flestum slysum. Og þegar umferð er mikil og þétt hættir sumum til að grípa til hans. Alltof oft sést þar sem bílstjórar fara fram úr langri röð á vegi, og óbrotin hvít lína er á milli akreinanna. Sík lína er eingöngu þar sem ekki er öruggt að menn geti séð og metið umferð á móti. Þess vegna er slíkur framúrakstur litinn mjög alvarlegum augum af lögreglu. Og þetta varðar ekki aðeins þá sem fara fram úr, heldur ekki síður þá sem þeir eiga hugsanlega eftir að mæta og geta engan veginn komið sér til hjálpar. Hraðakstur er hins vegar það atriði sem oftast er nefnt varðandi hættur í umferð. Víst er að lögregla beitir öllum sínum leiðum til að koma í veg fyrir hann. Bæði verða lögreglumenn við hefðbundið eftirlit og jafnframt hafa verið settar upp hraðamynda-vélar víða í vegakerfinu, sem komið hafa mörgum í opna skjöldu. Þar við bætist að öll viðurlög hafa verið hert, sektir hækkaðar og ungir ökumenn með bráðabirgðaskírteini þurfa að gangast undir akstursbann fái þeir fjóra punkta á tímabilinu sem það er í gildi. Því fylgir mikill kostnaður og óþægindi. Og sannast sagna er óþarfi að lenda í þeirri stöðu. Það gerist með því að fara eftir lögum og reglum. Og það er auðvelt. Sannið til! Umferðarstofa óskar vegfarendum góðrar ferðar og öruggrar heimkomu. Höfundur er verkefnastjóri á Umferðarstofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira