WTO-viðræðum slitið 31. júlí 2008 04:15 Sigurður Eyþórsson skrifar um viðskipti með landbúnaðarvörur: Viðræðum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um viðskipti með landbúnaðar- og iðnaðarvörur var slitið á þriðjudag eftir níu daga stanslausa fundi. Það sem réði úrslitum um að samkomulag tókst ekki var deila Bandaríkjamanna annarsvegar og Kínverja og Indverja hinsvegar um rétt þeirra síðarnefndu til að vernda innlenda framleiðslu við ákveðnar aðstæður. Kínverjar og Indverjar vildu hafa rétt til þess að leggja talsvert háa tolla á innfluttar vörur ef skyndileg aukning yrði á innflutningi eða ef verð á innfluttum vörum lækkaði undir ákveðin mörk. Ekki náðist samkomulag um hver þessi mörk ættu að vera og því fór sem fór. Pascal Lamy forstjóri WTO sagði á blaðamannafundi síðastliðinn þriðjudag að þrátt fyrir þetta hefði náðst mikill árangur í Genf og lausn hefði fundist á 18 af 20 helstu ágreiningsatriðum sem fyrir lágu í upphafi fundar. En niðurstaðan sýnir að mörgum ríkjum er annt um að tryggja það að þau geti verndað innlenda matvælaframleiðslu upp að vissu marki. Stóru útflutningsríkin verða að taka tillit til þess ef samkomulag á að nást. Ekki liggur fyrir hvenær viðræðurnar verða teknar upp að nýju, en búast má við því að svo verði einhvern tíma á næstu misserum. Margir hafa spáð því að svo verði þó ekki fyrr en nýr forseti hefur tekið við embætti í Bandaríkjunum í janúar nk. og ný framkvæmdastjórn ESB hefur verið skipuð fyrri hluta næsta árs. Samkomulag er því ekki úr sögunni þó viðræðum hafi verið slitið nú. Eins og kunnugt er snúast þessar viðræður um annarsvegar að draga úr opinberum stuðningi við iðnað og landbúnað og hinsvegar um markaðsaðgang fyrir framleiðsluvörur greinanna. Það er ekkert sérstakt fagnaðarefni fyrir íslenskan landbúnað að ekki hafi tekist samkomulag nú, því óvissa um rekstrarskilyrði er ekki hagstæð fyrir greinina fremur en aðrar atvinnugreinar. Ljóst er að verulegar breytingar verða á rekstrarumhverfi íslensks landbúnaðar ef samkomulag næst. Ekkert er því til fyrirstöðu að hefja vinnu við að fara yfir hvað þær breytingar geta þýtt. Mörgum spurningum er ósvarað miðað við núverandi samkomulagsdrög s.s. hvernig stjórnvöld hyggjast breyta stuðningskerfinu og hvernig tollabreytingar verða útfærðar. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lýst yfir að ekki verði dregið úr heildarstuðningi og að hann muni fljótlega óska eftir viðræðum við Bændasamtökin um málið í heild. Þessar yfirlýsingar benda til þess að ráðherrann sé tilbúinn að hefja yfirferð á málinu í samstarfi við BÍ. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda og fylgdist með WTO-viðræðunum í Genf fyrir hönd Bændasamtaka Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Sigurður Eyþórsson skrifar um viðskipti með landbúnaðarvörur: Viðræðum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um viðskipti með landbúnaðar- og iðnaðarvörur var slitið á þriðjudag eftir níu daga stanslausa fundi. Það sem réði úrslitum um að samkomulag tókst ekki var deila Bandaríkjamanna annarsvegar og Kínverja og Indverja hinsvegar um rétt þeirra síðarnefndu til að vernda innlenda framleiðslu við ákveðnar aðstæður. Kínverjar og Indverjar vildu hafa rétt til þess að leggja talsvert háa tolla á innfluttar vörur ef skyndileg aukning yrði á innflutningi eða ef verð á innfluttum vörum lækkaði undir ákveðin mörk. Ekki náðist samkomulag um hver þessi mörk ættu að vera og því fór sem fór. Pascal Lamy forstjóri WTO sagði á blaðamannafundi síðastliðinn þriðjudag að þrátt fyrir þetta hefði náðst mikill árangur í Genf og lausn hefði fundist á 18 af 20 helstu ágreiningsatriðum sem fyrir lágu í upphafi fundar. En niðurstaðan sýnir að mörgum ríkjum er annt um að tryggja það að þau geti verndað innlenda matvælaframleiðslu upp að vissu marki. Stóru útflutningsríkin verða að taka tillit til þess ef samkomulag á að nást. Ekki liggur fyrir hvenær viðræðurnar verða teknar upp að nýju, en búast má við því að svo verði einhvern tíma á næstu misserum. Margir hafa spáð því að svo verði þó ekki fyrr en nýr forseti hefur tekið við embætti í Bandaríkjunum í janúar nk. og ný framkvæmdastjórn ESB hefur verið skipuð fyrri hluta næsta árs. Samkomulag er því ekki úr sögunni þó viðræðum hafi verið slitið nú. Eins og kunnugt er snúast þessar viðræður um annarsvegar að draga úr opinberum stuðningi við iðnað og landbúnað og hinsvegar um markaðsaðgang fyrir framleiðsluvörur greinanna. Það er ekkert sérstakt fagnaðarefni fyrir íslenskan landbúnað að ekki hafi tekist samkomulag nú, því óvissa um rekstrarskilyrði er ekki hagstæð fyrir greinina fremur en aðrar atvinnugreinar. Ljóst er að verulegar breytingar verða á rekstrarumhverfi íslensks landbúnaðar ef samkomulag næst. Ekkert er því til fyrirstöðu að hefja vinnu við að fara yfir hvað þær breytingar geta þýtt. Mörgum spurningum er ósvarað miðað við núverandi samkomulagsdrög s.s. hvernig stjórnvöld hyggjast breyta stuðningskerfinu og hvernig tollabreytingar verða útfærðar. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lýst yfir að ekki verði dregið úr heildarstuðningi og að hann muni fljótlega óska eftir viðræðum við Bændasamtökin um málið í heild. Þessar yfirlýsingar benda til þess að ráðherrann sé tilbúinn að hefja yfirferð á málinu í samstarfi við BÍ. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda og fylgdist með WTO-viðræðunum í Genf fyrir hönd Bændasamtaka Íslands.
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun