Ríki og bankar snúa bökum saman Óli Kristján Ármannsson skrifar 15. apríl 2008 06:00 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ver bankana af krafti í nýju viðtali við Berlingske Tidende og kveður ríkið standa fyllilega að baki þeim. Fréttablaðið/Anton
Viðskiptabankar þjóðarinnar eiga stuðning ríkisstjórnarinnar vísan ef í harðbakkann slær, að því er haft er eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í viðtali við danska viðskiptablaðið Berlingske Tidende í gær. Beðið hefur verið útspils ríkis og Seðlabanka um hvernig betur verður staðið að baki bönkunum, en ekki liggur þó enn fyrir í hvaða formi sá stuðningur verður. Í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans í gær er bið eftir aðgerðum hins opinbera gagnrýnd. „Svo virðist sem tengja megi veikingu krónunnar við aðgerðaleysi Seðlabankans, en enn hafa engar ákvarðanir verið gerðar opinberar um stækkun gjaldeyrisforðans eða um samninga við erlenda seðlabanka. Mikilvægt er að ekki þurfi að bíða mjög lengi eftir niðurstöðum í þessum málum,“ segir þar. Í viðtalinu í Berlingske er haft eftir Ingibjörgu að þurfi til þess að koma verði sótt bæði í ríkisstjóð og gjaldeyrisvarasjóð landsins bönkunum til stuðnings. „Algjör eining er um að snúa bökum saman með bönkunum vegna þeirra árása sem þeir hafa mátt búa við,“ segir hún og áréttar að grannt sé fylgst með athöfnum erlendra vogunarsjóða í þessum efnum. Þá áréttar Ingibjörg Sólrún í viðtalinu að bæði bankarnir og íslenskt efnhagslíf hafi mátt sæta óréttmætri gagnrýni að hluta. „Ef við tryðum því að íslenskir bankar stæðu verr en sambærilegir bankar værum við ekki jafnreiðubúin að koma þeim til aðstoðar,“ segir hún og bendir á að staða þeirra sé á margan hátt betri en annarra banka og þeir hafi ekki orðið fyrir beinum skaða af fjárfestingum í bandarískum undirmálslánum.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira