Viðskipti innlent

Ríki og bankar snúa bökum saman

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ver bankana af krafti í nýju viðtali við Berlingske Tidende og kveður ríkið standa fyllilega að baki þeim. Fréttablaðið/Anton
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ver bankana af krafti í nýju viðtali við Berlingske Tidende og kveður ríkið standa fyllilega að baki þeim. Fréttablaðið/Anton
Viðskiptabankar þjóðarinnar eiga stuðning ríkisstjórnarinnar vísan ef í harðbakkann slær, að því er haft er eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í viðtali við danska viðskiptablaðið Berlingske Tidende í gær.

Beðið hefur verið útspils ríkis og Seðlabanka um hvernig betur verður staðið að baki bönkunum, en ekki liggur þó enn fyrir í hvaða formi sá stuðningur verður. Í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans í gær er bið eftir aðgerðum hins opinbera gagnrýnd. „Svo virðist sem tengja megi veikingu krónunnar við aðgerðaleysi Seðlabankans, en enn hafa engar ákvarðanir verið gerðar opinberar um stækkun gjaldeyrisforðans eða um samninga við erlenda seðlabanka. Mikilvægt er að ekki þurfi að bíða mjög lengi eftir niðurstöðum í þessum málum,“ segir þar.

Í viðtalinu í Berlingske er haft eftir Ingibjörgu að þurfi til þess að koma verði sótt bæði í ríkisstjóð og gjaldeyris­varasjóð landsins bönkunum til stuðnings. „Algjör eining er um að snúa bökum saman með bönkunum vegna þeirra árása sem þeir hafa mátt búa við,“ segir hún og áréttar að grannt sé fylgst með athöfnum erlendra vogunar­sjóða í þessum efnum.

Þá áréttar Ingibjörg Sólrún í viðtalinu að bæði bankarnir og íslenskt efnhagslíf hafi mátt sæta óréttmætri gagnrýni að hluta. „Ef við tryðum því að íslenskir bankar stæðu verr en sambærilegir bankar værum við ekki jafnreiðubúin að koma þeim til aðstoðar,“ segir hún og bendir á að staða þeirra sé á margan hátt betri en annarra banka og þeir hafi ekki orðið fyrir beinum skaða af fjárfestingum í bandarískum undirmálslánum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×