Grófu hund lifandi við Kúagerði 21. júní 2008 16:56
Í hádeginu í dag barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um hund sem hefði fundist í hrauninu skammt frá Kúagerði, þar sem ekið er í áttina að Keili. Hafði fólk verið þar á ferð með hunda sína, töluvert langt frá veginum, er það gekk fram á lítinn hvolp sem hafði verið grafinn lifandi og skilinn eftir. Samkvæmt lýsingu lögreglunnar hafði nokkrum stórum og þungum grjóthnullungum verið raðað ofan á hvolpinn svo að aðeins sást rétt í höfuð hans. Hvolpurinn, sem lögreglan telur að sé Dobermann blanda og um það bil fjögurra mánaða gamall, var mjög máttfarinn og mikið bólginn og gat ekki staðið sjálfur uppi. Lögreglumenn fóru með hann á dýraspítala og telur dýralæknir þar að hvolpurinn muni ná sér. Þar sem hvolpurinn var ómerktur og er án örmerkis, er ekki vitað um eiganda. Lögreglan biður því þá sem hafa einhverja vitneskju um málið að hafa samband við sig í síma 420-1800. Um mjög gróft brot á dýraverndarlögum er um að ræða, segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira