Skoðun

Veljum íslenskt og gerum betur

Þegar við veljum íslenska framleiðslu er verið að gera margt fleira í leiðinni en einungis að versla því það kemur svo margfalt inn í kerfið um leið. Þá er greitt fyrir vöru með pening sem skilar sér út í laun til þess sem vinnur við framleiðsluna.

Íslensk framleiðsla skilar til þjóðfélagsins pening sem fer í gegnum kerfið á margan hátt. Því er það aðdáunarvert að vinnustaðir sem eru að framleiða útvega um leið þeim vinnu sem eiga erfitt með að fá vinnu annars staðar. Þessir vinnustaðir eru út um allt land og er hægt að sjá þá á heimasíðunni hlutverk.is. Sá stærsti þeirra er Múlalundur en þar er unnin vinna af mörgu tagi. Þar er um að ræða pökkun á ýmsu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Eins og staðan er í dag er erfitt að fá næg verkefni en það hefur verið þannig að erfitt hefur verið að klára allt sem hefur þurft að gera fyrir jólin. Það eru þrengingar í þjóðfélaginu og verðum við öll að standa saman í því að beina verkefnum á þessa vinnustaði ef möguleiki er á því.

Í Múlalundi eru framleiddar möppur og er sennilega vinsælast EGLA-bréfabindi. Þá eru framleiddar möppur úr plasti þar sem hráefnið kemur á rúllum hingað til lands og það er sneitt niður eftir kúnstarinnar reglum og settur pappi innan í þær og plastið soðið utan um möppuna og að lokum eru þær járnaðar. Vinnuferlið við plastmöppur frá Múlalundi sér 4 til 5 mönnum fyrir vinnu þannig að þegar ein mappa eða einn kassi af möppum frá Múlalundi er seldur skilar sú sala miklum verðmætum til þjóðfélagsins. Þarna er framleiðsla sem skilar sér margfalt, auk þess sem hún verður til þess að einstaklingur kemst aftur út á vinnumarkaðinn vegna þess að þú keyptir eina möppu sem er framleidd í Múlalundi. Þessi eina mappa skilaði fimm manns vinnu. Einn er kannski að komast aftur út á vinnumarkað eftir að hafa jafnað sig eftir slys, er hættur að taka inn meðul og þiggur ekki lengur bætur. Hann er orðinn starfsmaður á hinum almenna vinnumarkaði. Húrra! Við völdum íslenska framleiðslu og með því unnum við stóran sigur.

Það er svo margt fleira sem er framleitt í Múlalundi og má þar nefna sérprentaðar möppur. Þar eru möguleikar í útliti á möppu óþrjótandi og hugarflug hvers og eins getur fengið að njóta sín. Þegar nóg er að gera í því að framleiða slíkar möppur sér það fimm starfsmönnum fyrir vinnu. Við framleiðum alls kyns vasa, umslög og gatapoka af öllum stærðum og gerðum úr plasti og bjóðum upp á að merkja þá framleiðslu eftir óskum hvers og eins. Jafnframt er nokkur aukning í framleiðslu á músarmottum og mottum til að skrifa undir posakvittanir á afgreiðsluborðum. Það er skemmtileg nýjung og hefur verið að aukast sérstaklega fyrir jól að fólk láti framleiða nokkrar eða jafnvel eina músarmottu með mynd af ástvini. Framleiddir eru vasar fyrir geisladiska og er hægt að merkja þá.

Vinnuumhverfi eins og í Múlalundi byggist upp á því að taka tillit, klappa á bakið og sýna hverjum og einum umburðarlyndi og skilning, þannig að hverjum og einum líði vel og endurheimti sjálfstrausti og virðingu fyrir sér og lífinu. Múlalundur verður 50 ára á næsta ári. Þá er um að gera að fólk reyni eftir fremsta megni að versla hjá okkur. Hvernig hefðu hlutirnir þróast ef Múlalundar hefði ekki notið við?Bæði ríkið og Reykjavíkurborg hafa sparað hundruð milljóna á þeim árum sem Múlalundur hefur starfað.

Sem sagt, veljum íslenskt og látum það vinna okkur öllum gagn um leið. Þannig náum við á Múlalundi okkar markmiði: að skapa þeim vinnu sem ekki fá vinnu annars staðar.

Höfundur er framkvæmdastjóri SÍBS, vinnustofu SÍBS.




Skoðun

Sjá meira


×