Veljum íslenskt og gerum betur 12. desember 2008 06:00 Þegar við veljum íslenska framleiðslu er verið að gera margt fleira í leiðinni en einungis að versla því það kemur svo margfalt inn í kerfið um leið. Þá er greitt fyrir vöru með pening sem skilar sér út í laun til þess sem vinnur við framleiðsluna. Íslensk framleiðsla skilar til þjóðfélagsins pening sem fer í gegnum kerfið á margan hátt. Því er það aðdáunarvert að vinnustaðir sem eru að framleiða útvega um leið þeim vinnu sem eiga erfitt með að fá vinnu annars staðar. Þessir vinnustaðir eru út um allt land og er hægt að sjá þá á heimasíðunni hlutverk.is. Sá stærsti þeirra er Múlalundur en þar er unnin vinna af mörgu tagi. Þar er um að ræða pökkun á ýmsu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Eins og staðan er í dag er erfitt að fá næg verkefni en það hefur verið þannig að erfitt hefur verið að klára allt sem hefur þurft að gera fyrir jólin. Það eru þrengingar í þjóðfélaginu og verðum við öll að standa saman í því að beina verkefnum á þessa vinnustaði ef möguleiki er á því. Í Múlalundi eru framleiddar möppur og er sennilega vinsælast EGLA-bréfabindi. Þá eru framleiddar möppur úr plasti þar sem hráefnið kemur á rúllum hingað til lands og það er sneitt niður eftir kúnstarinnar reglum og settur pappi innan í þær og plastið soðið utan um möppuna og að lokum eru þær járnaðar. Vinnuferlið við plastmöppur frá Múlalundi sér 4 til 5 mönnum fyrir vinnu þannig að þegar ein mappa eða einn kassi af möppum frá Múlalundi er seldur skilar sú sala miklum verðmætum til þjóðfélagsins. Þarna er framleiðsla sem skilar sér margfalt, auk þess sem hún verður til þess að einstaklingur kemst aftur út á vinnumarkaðinn vegna þess að þú keyptir eina möppu sem er framleidd í Múlalundi. Þessi eina mappa skilaði fimm manns vinnu. Einn er kannski að komast aftur út á vinnumarkað eftir að hafa jafnað sig eftir slys, er hættur að taka inn meðul og þiggur ekki lengur bætur. Hann er orðinn starfsmaður á hinum almenna vinnumarkaði. Húrra! Við völdum íslenska framleiðslu og með því unnum við stóran sigur. Það er svo margt fleira sem er framleitt í Múlalundi og má þar nefna sérprentaðar möppur. Þar eru möguleikar í útliti á möppu óþrjótandi og hugarflug hvers og eins getur fengið að njóta sín. Þegar nóg er að gera í því að framleiða slíkar möppur sér það fimm starfsmönnum fyrir vinnu. Við framleiðum alls kyns vasa, umslög og gatapoka af öllum stærðum og gerðum úr plasti og bjóðum upp á að merkja þá framleiðslu eftir óskum hvers og eins. Jafnframt er nokkur aukning í framleiðslu á músarmottum og mottum til að skrifa undir posakvittanir á afgreiðsluborðum. Það er skemmtileg nýjung og hefur verið að aukast sérstaklega fyrir jól að fólk láti framleiða nokkrar eða jafnvel eina músarmottu með mynd af ástvini. Framleiddir eru vasar fyrir geisladiska og er hægt að merkja þá. Vinnuumhverfi eins og í Múlalundi byggist upp á því að taka tillit, klappa á bakið og sýna hverjum og einum umburðarlyndi og skilning, þannig að hverjum og einum líði vel og endurheimti sjálfstrausti og virðingu fyrir sér og lífinu. Múlalundur verður 50 ára á næsta ári. Þá er um að gera að fólk reyni eftir fremsta megni að versla hjá okkur. Hvernig hefðu hlutirnir þróast ef Múlalundar hefði ekki notið við?Bæði ríkið og Reykjavíkurborg hafa sparað hundruð milljóna á þeim árum sem Múlalundur hefur starfað. Sem sagt, veljum íslenskt og látum það vinna okkur öllum gagn um leið. Þannig náum við á Múlalundi okkar markmiði: að skapa þeim vinnu sem ekki fá vinnu annars staðar. Höfundur er framkvæmdastjóri SÍBS, vinnustofu SÍBS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar