Viðskipti innlent

Aðalmiðlarar leystir skyldum um viðskiptavakt með ríkisbréf

Rétt í þessu gaf Seðlabanki út þá tilkynningu að aðalmiðlarar eru leystir tímabundið undan öllum skyldum að því er varðar viðskiptavakt með ríkisbréf á eftirmarkaði.

Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þessa ákvörðun Seðlabankans megi rekja til þess að mikil eftirspurn hefur verið eftir ríkistryggðum bréfum, bæði ríkisbréfum og íbúðabréfum.

Sem stendur er framboð ríkisbréfa uppurið og eigendur bréfanna eru ekki tilbúnir að selja þau. Viðskipti með ríkisbréf eru því líkleg til að vera lítil þar til meira framboð kemur.

"Æskilegt er að stjórnvöld og Seðlabankinn hraði útboðum bæði á íbúðabréfum og ríkisbréfum," segir í Morgunkorninu










Fleiri fréttir

Sjá meira


×