Svört skýrsla Bear Stearns eftir Íslandsheimsókn 31. mars 2008 10:23
Nokkru eftir að fulltrúar fjögurra vogunarsjóða heimsóttu Ísland ásamt þremur mönnum frá fjárfestingarbankanum Bear Stearns gaf greining bankans út svarta skýrslu um íslenska markaðinn. Skýrsla þessi er sett upp sem samanburður á Íslandi og Kasakstan þar sem Ísland kemur mjög illa út úr samanburðinum. Kasakstan er helst þekkt á Vesturlöndum sem heimkynni Borats, persónu sem leikarinn Ali G gerði heimsfræga í kvikmynd fyrir nokkrum misserum. Skýrslan er dagsett þann 29. febrúar. Þar er greint frá því að löndin séu sambærileg að því leyti að erlent lánsfé hafi blásið út lánsfjármarkaðinn innanlands með tilheyrandi vexti í verslunargeiranum, auknum innflutningi, auknum viðskiptahalla og hækkandi fasteignaverði. Síðan er greint frá því að skuldatryggingarálag (CDS) banka í Kasakstan sé orðið á bilinu 500 til 800 punktar á meðan íslensku bankarnir séu með 240 punkta álag. Síðan mælir Bear Stearns með því að fjárfestar selji fimm ára CDS í bönkum Kasakstan beint eða þá gegn fimm ára CDS á Íslandi. Og ástæðan fyrir þessari ráðleggingu greiningar Bear Stearns er að áhættan á gjaldþroti bankanna á Íslandi sé margföld á við bankana í Kasakstan! Greiningin segir að gjaldþrot íslensks banka myndi þýða um 75 til 100 prósenta aukningu á skuldum hins opinbera í kjölfar þess að ríkisstjórnin þyrfti að bjarga málinu en að í Kasakstan myndi slíkt aðeins þýða tæplega 20 prósenta aukningu.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira