Virðing grundvallarmannréttinda 29. mars 2008 03:00 Við Íslendingar höfum skuldbundið okkur til að virða mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og gegnum tíðina staðið dyggan vörð um gagnkvæma virðingu þjóða fyrir mannréttindum. Þegar hins vegar kemur að því að við fáum athugasemdir við framkvæmd mála í eigin landi, í þessu tilviki úthlutun veiðiheimilda til handa aðilum í fiskveiðistjórnunarkerfinu, virðist ganga seint og illa að taka á málum. Niðurstaða Mannréttindanefndarinnar í máli tveggja sjómanna er áfellisdómur yfir aðferðum stjórnvalda hér á landi, sem bregðast þarf við með nauðsynlegum úrbótum á kerfinu. Við getum ekki ferðast um víðan völl og gagnrýnt aðrar þjóðir meðan við tökum ekki á málum í eigin landi. Í ljósi þess eru ferðalög ráðamanna nú undir þessum kringumstæðum sérkennileg þar sem unnið er að því að tryggja Íslendingum sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Við í Frjálslynda flokknum höfum gagnrýnt fiskveiðistjórnarkerfið frá upphafi og meðal annars bent á þá leið að bjóða upp aflaheimildir á markaði þannig að jafnræðis væri gætt í þessu sambandi. Við höfum einnig flutt frumvarp þess efnis að heimila minnstu bátunum frelsi til veiða að ákveðnu marki með handfærum, sem gert hefði ákveðna aðkomu mögulega. Lögin um fiskveiðistjórn eru barn síns tíma og löngu tími til kominn að fara í heildarendurskoðun með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi, allt frá veiðiráðgjöf til kerfisskipulagsins. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki frekar en sú fyrri staðið vaktina varðandi endurskoðun þrátt fyrir endalausa ágalla þessa skipulags sem dunið hafa yfir í áraraðir. Brottkast fiskjar, hrun sjávarbyggða með tilfærslu aflaheimilda millum aðila og skortur á vitneskju um fiskistofnana kringum landið getur ekki talist okkur sæmandi sem fiskveiðiþjóð. Hér með er skorað á núverandi ríkisstjórn að taka nú þegar til við endurskoðun í þessu sambandi. Höfundur er þingmaður Frjálslynda flokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Halldór 08.08.26 Halldór Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Sjá meira
Við Íslendingar höfum skuldbundið okkur til að virða mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og gegnum tíðina staðið dyggan vörð um gagnkvæma virðingu þjóða fyrir mannréttindum. Þegar hins vegar kemur að því að við fáum athugasemdir við framkvæmd mála í eigin landi, í þessu tilviki úthlutun veiðiheimilda til handa aðilum í fiskveiðistjórnunarkerfinu, virðist ganga seint og illa að taka á málum. Niðurstaða Mannréttindanefndarinnar í máli tveggja sjómanna er áfellisdómur yfir aðferðum stjórnvalda hér á landi, sem bregðast þarf við með nauðsynlegum úrbótum á kerfinu. Við getum ekki ferðast um víðan völl og gagnrýnt aðrar þjóðir meðan við tökum ekki á málum í eigin landi. Í ljósi þess eru ferðalög ráðamanna nú undir þessum kringumstæðum sérkennileg þar sem unnið er að því að tryggja Íslendingum sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Við í Frjálslynda flokknum höfum gagnrýnt fiskveiðistjórnarkerfið frá upphafi og meðal annars bent á þá leið að bjóða upp aflaheimildir á markaði þannig að jafnræðis væri gætt í þessu sambandi. Við höfum einnig flutt frumvarp þess efnis að heimila minnstu bátunum frelsi til veiða að ákveðnu marki með handfærum, sem gert hefði ákveðna aðkomu mögulega. Lögin um fiskveiðistjórn eru barn síns tíma og löngu tími til kominn að fara í heildarendurskoðun með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi, allt frá veiðiráðgjöf til kerfisskipulagsins. Núverandi ríkisstjórn hefur ekki frekar en sú fyrri staðið vaktina varðandi endurskoðun þrátt fyrir endalausa ágalla þessa skipulags sem dunið hafa yfir í áraraðir. Brottkast fiskjar, hrun sjávarbyggða með tilfærslu aflaheimilda millum aðila og skortur á vitneskju um fiskistofnana kringum landið getur ekki talist okkur sæmandi sem fiskveiðiþjóð. Hér með er skorað á núverandi ríkisstjórn að taka nú þegar til við endurskoðun í þessu sambandi. Höfundur er þingmaður Frjálslynda flokksins.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar