Krafa Straums á XL nærri sex milljarðar króna 12. september 2008 08:16 William Fall, forstjóri Straums.
XL Leisure Group plc. hefur óskað eftir greiðslustöðvun eftir að reynt hafði verið til þrautar um alllangt skeið að koma við fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins. Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. hefur átt gott starfstarf við XL um árabil og þykir miður að ekki skyldi takast að leysa þann vanda sem fyrirtækið stóð frammi fyrir. Alþekkt er að skilyrði til flugrekstrar hafa að mörgu leyti verið erfið að undanförnu og hefur Straumur unnið náið með stjórnendum XL að því að finna lausn á vanda fyrirtækisins. Jafnframt hefur bankinn lagt fyrirtækinu til fjármagn að undanförnu í því skyni að mæta lausafjárþörf þess. Áhætta Straums af kröfum á hendur XL nemur um 45 milljónum evra eða 5,7 milljarðar króna. Á þessu stigi er ekki ljóst að hvaða marki þetta fé verður endurheimt. Þótt fjárhæðin sem um ræðir sé ekki léttvæg er hún lág með hliðsjón af eigin fé Straums, sem var 1,5 milljarðar evra í lok annars ársfjórðungs. Samkomulag hefur náðst um að Straumur eignist starfsemi XL í Þýskalandi og Frakklandi, enda telur bankinn að þar sé um að ræða rekstur sem staðið geti undir sér. Starfsemi þessara fyrirtækja verður haldið áfram innan sjálfstæðra eininga. Ætlan Straums er að styðja við áframhaldandi rekstur þeirra og verður eignaraðild bankans að þeim tekin til endurskoðunar eftir því sem rétt og tímabært þykir. Þetta segir í tilkynningu frá Straumi-Burðarás.
Tengdar fréttir Bréf Eimskips sett á athugunarlista Kauphallarinnar Hlutabréf í Eimskipafélaginu hafa verið færð á athugunarlista í Kauphöllinni. Þetta er gert í tengslum við skilyrði Kauphallarinnar fyrir töku hlutabréfa til viðskipta, vegna umtalsverðrar óvissu varðandi verðmyndun vegna hættu á ójafnræði meðal fjárfesta, líkt og segir í tilkynningu. 9. september 2008 09:30 XL Leisure gjaldþrota Breski ferðaheildsalinn XL Leisure er gjaldþrota eftir því sem heimildir Vísis herma. Félagið er að einhverju leyti í eigu Íslendinga.Þeirra á meðal er Magnúsar Stephensen. Ekki náðist í Magnús við vinnslu þessarar fréttar. 11. september 2008 22:31 Segir meir verið að bjarga Landsbankanum en Eimskip Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur segir að Björgólfsfeðgar hafi meir verið að bjarga Landsbankanum en Eimskip með því að kaupa 207 milljóna evra kröfuna á hendur XL Leisure Group. 11. september 2008 15:43 XL Leisure Group í þrot Ferðaskrifstofan XL Leisure Group í Bretlandi er gjaldþrota og mun Eimskip þar með bera ábyrgð á 27 milljarða króna láni sem það gekk í ábyrgð fyrir við sölu XL í október 2006. 12. september 2008 06:58 Björgólfsfeðgar tilbúnir með 26 milljarða lán til að bjarga Eimskip Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson fara fyrir hópi fjárfesta sem er tilbúinn til að veita Eimskip víkjandi lán að upphæð um 26 milljarðar fari svo að ábyrgð vegna XL Leisure Group falli á félagið eins og líkur eru á samkvæmt tilkynningu sem það sendi Kauphöllinni fyrir skömmu. 10. september 2008 01:53 Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira
Bréf Eimskips sett á athugunarlista Kauphallarinnar Hlutabréf í Eimskipafélaginu hafa verið færð á athugunarlista í Kauphöllinni. Þetta er gert í tengslum við skilyrði Kauphallarinnar fyrir töku hlutabréfa til viðskipta, vegna umtalsverðrar óvissu varðandi verðmyndun vegna hættu á ójafnræði meðal fjárfesta, líkt og segir í tilkynningu. 9. september 2008 09:30
XL Leisure gjaldþrota Breski ferðaheildsalinn XL Leisure er gjaldþrota eftir því sem heimildir Vísis herma. Félagið er að einhverju leyti í eigu Íslendinga.Þeirra á meðal er Magnúsar Stephensen. Ekki náðist í Magnús við vinnslu þessarar fréttar. 11. september 2008 22:31
Segir meir verið að bjarga Landsbankanum en Eimskip Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur segir að Björgólfsfeðgar hafi meir verið að bjarga Landsbankanum en Eimskip með því að kaupa 207 milljóna evra kröfuna á hendur XL Leisure Group. 11. september 2008 15:43
XL Leisure Group í þrot Ferðaskrifstofan XL Leisure Group í Bretlandi er gjaldþrota og mun Eimskip þar með bera ábyrgð á 27 milljarða króna láni sem það gekk í ábyrgð fyrir við sölu XL í október 2006. 12. september 2008 06:58
Björgólfsfeðgar tilbúnir með 26 milljarða lán til að bjarga Eimskip Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson fara fyrir hópi fjárfesta sem er tilbúinn til að veita Eimskip víkjandi lán að upphæð um 26 milljarðar fari svo að ábyrgð vegna XL Leisure Group falli á félagið eins og líkur eru á samkvæmt tilkynningu sem það sendi Kauphöllinni fyrir skömmu. 10. september 2008 01:53