Tap á XL samsvarar framlagi ríkisins til háskóla Heimir Már Pétursson skrifar 12. september 2008 19:06
Upphæðin sem Eimskip tapaði á eign sinni í XL samsvarar öllum framlögum ríkisins til háskóla landsins og stæði að auki undir framlögum til dómstólanna og öryggismála ríkisins. Landsbankinn treystir því að ekki sé von á fleiri fýlusprengjum vegna ævintýralegra fjárfestinga félagsins. Verð hlutabréfa í Eimskipum féllu um 21% í dag. Raunarsögu viðskiptanna með hlut Eimskips í XL Lesure Group má rekja aftur til ársins 2004 þegar Atlanta undir stjórn Magnúsar Þorsteinssonar kaupir tæplega þrjátíu og eins prósenta hlut í XL. Atlanta varð síðar að Avion sem keypti svo Eimskip og nafn Avions hvarf og varð Eimskip. Tapið á þessu eina félagi á átta árum er 27 milljarðar, tala sem venjulegt launafólk á erfitt með að skilja. Til að setja hana í samhengi má bera hana saman við stærðir úr þjóðarbúskapnum. Fyrir 27 milljarða má reka þrjá háskóla eins og Háskóla Íslands í eitt ár, en framlög ríkisins til Háskóla Íslands í ár er níu milljarðar króna. Framlög ríkisins til allra háskóla landsins eru tuttugu og tveir milljarðar, þannig að fyrir tap Eimskipa má standa undir öllum þeim framlögum og að auki þeim 4,5 milljörðum sem ríkissjóður leggur til dómstóla landsins á ári og til öryggismála. Öldrunar- og endurhæfingarstofnanir fá 25 milljarða á þessu ári frá ríkissjóði þannig að upphæðin sem Eimskip tapar nú stendur undir allri þeirri þjónustu og að auki væri hægt að byggja Landeyjahöfn sem kosta mun tvo milljarða. Ásgeir Friðgeirsson talsmaður Landsbankans segir að Landsbankinn telji rekstur Eimskipa standa vel þótt fyrirtækið hafi misstigið sig illa í fjárfestingum. Hjá Landsbankanum treysti menn því að ekki sé von á fleiri ótíðindum vegna misráðinna fjárfestinga félagsins og að allt sé nú komið upp á borðið. Eftir yfirtöku Björgúlfsfeðga á skuldbindingu Eimskipa komi þrennt til greina, að lengja í lánum og endurfjármagna, létta á skuldum með sölu eigna eða gefa út nýtt hlutafé.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Sjá meira